Upplýsingatorg
| Útg.nr: | 9 |
| Útg.dags: | 01.07.2011 |
3. Skráningarmerki
3.10.6 Fornmerki
Heimild til fornmerkja
Fornbifreið: Fornmerki mega vera á fornbifreiðum. Bifreið skal vera skráð í notkunarflokkinn "Fornbifreið" og uppfylla skilyrði um fornbifreið (1.9.3).
Skilgreining á fornbifreið: Bifreið sem ekki er ætluð til almennrar notkunar og telst vera safngripur og er orðin 25 ára gömul.
Dráttarvélar og [ ]9 bifhjól: Dráttarvélar og bifhjól sem eru orðin 25 ára mega bera fornmerki.
Gerðir fornmerkja: Fornmerki skulu vera í samræmi við þær reglur er giltu um hinar eldri gerðir fornmerkja (sjá gerðir fornmerkja hér að neðan).
Afgreiðsla fornmerkja
Umsókn um fornmerki: Framvísa skal umsókn um fornmerki á fornbifreið (US.156).
Skráning á rétthafa fornmerkis: Umferðarstofa úthlutar áletrun á fornmerki og skráir umsækjanda sem rétthafa að áletrun í ökutækjaskrá. Við úthlutun áletrunar á fornmerki hlýtur sá réttinn sem fyrstur sækir skriflega um. Ekki er heimilt úthluta áletrun sem þegar er í notkun á skráningarmerki. [Heimilt er að færa fornmerki yfir á eftirlifandi maka rétthafa á grundvelli leyfis til setu í óskiptu búi. Framvísa verður búsetuleyfi sem er staðfest af sýslumanni.]8
Áletrun á fornmerki: Heimilt er að taka upp áletrun sem er samhljóða eldra skráningarmerki sem ekki er í notkun. [Áletrun á fornmerki má aðeins innihalda bókstafi og tölustafi, engin tákn eru heimil t.d. punktar, kommur eða bandstrik.] Eldra skráningarmerki telst ekki lengur í notkun ef ökutæki sem bar merkið hefur verið afskráð eða ökutækið er komið á fastanúmer. Ekki er heimilt að hafa áletrun sem er 2 bókstafir og 3 tölustafir[, eða 3 bókstafir og 2 tölustafir]5) þ.e. eins og fastanúmer. Ekki er heimilt að taka upp áletrun á fornmerki sem er samhljóða áletrun á öðru skráningarmerki í notkun, hvort sem það er fornmerki, einkamerki eða eldri tegund skráningarmerkja.
Fastanúmer ökutækis: Við umsókn um fornmerki skal tilgreina fastanúmer ökutækis sem á að bera fornmerki. Ökutæki skal uppfylla kröfur um viðkomandi gerð fornmerkja.
Fornmerki stofnað í plötugeymslu: Fornmerki eru ekki skráð í pöntunarkerfi ökutækjaskrár og því þarf að stofna þau sérstaklega í plötugeymslu. Velja skal rétta plötugerð miðað við aldur ökutækis. Geymslustaður skal vera Umferðarstofa og plötustaða skal vera "Í geymslu".
Plötugerðir: Þegar merki eru stofnuð í plötugeymslu skal velja rétta plötugerð miðað við aldur ökutækisins og gerð fornmerkja.
Framleiðsla merkja: Rétthafi fornmerkis lætur framleiða fornmerki en áður en merkin eru sett á ökutæki þarf að samþykkja þau hjá Umferðarstofu.
Samþykki fornmerkja: Áður en fornmerki eru afhent á ökutæki þarf að framvísa þeim hjá Umferðarstofu [ ...]6 þar sem þau eru metin og samþykkt.
Afhending fornmerkja: Áður en heimilt er að afhenda fornmerki á ökutæki skal samþykkja þau hjá Umferðarstofu [ ... ]7.. Aðeins er heimilt að skrá fornmerki á ökutæki sem uppfyllir skilyrði um fornmerki.
Almennum merkjum skilað inn: Ef ökutæki var áður skráð á önnur skráningarmerki skal þeim skilað inn við afhendingu fornmerkja og þeim fargað.
Eldri merki sem fornmerki: Ef skráningarmerkjum af eldri gerð er skilað inn vegna afskráningar eða þegar ökutæki fer yfir á fastanúmer, er eiganda heimilt að halda eldri merkjum sem fornmerkjum. Það er þó skilyrði að um leið sé framvísað umsókn um fornmerki á tiltekið ökutæki. Skráningarmerkin af eldri gerð eru skráð eyðilögð í ökutækjaskrá en stofnuð í plötugeymslu sem fornmerki. Að því búnu eru eiganda afhent merkin eða þau skráð á fornbifreið.
Framsal á fornmerki: Framvísa skal eyðublaði (US.157).
Gjald: Fyrir skráningu, afhendingu, framsal og flutning á fornmerki skal greiða skráningargjald fornmerkja (gjaldið skal greitt fyrir hvern verklið).
Gerðir fornmerkja
Almennt: Gerðir fornmerkja skulu vera í samræmi við þær reglur er giltu um eldri gerðir fornmerkja.
Bifreið að árgerð 1937 og eldra: Merkin skulu hafa hvítt letur á svörtum grunni eða svart letur á hvítum grunni. Merkin skulu vera 120 mm á hæð og lengd skal ráðast af fjölda stafa. Sjá sýnishorn á upplýsingaskjölum US.322 og US.323.
Bifreið að árgerð 1938 - 1949: Merki af þessari gerð skulu vera rétthyrnd, aflöng spjöld, úr 2 mm þykku járni, 112 mm á hæð og lengd eftir fjölda stafa. Stafir skulu vera hvítir, málaðir eða gleraðir, með steinskrift á svartan málaðan eða gleraðan grunn og stærð stafa skal vera þessi: hæð 80 mm, breidd 50 mm og breidd strika 15 mm. Framan við tölurnar skal mála einkennisbókstaf lögsagnarumdæmis og skal vera strik á milli bókstafs og tölustafa sem er 22 mm langt og 12 mm breitt. Bil milli stafa skal vera að minnsta kosti 10 mm. Sjá sýnishorn á upplýsingaskjali (US.324).
Bifreið að árgerð 1950 og yngra (en þó 25 ára): Merkin skulu vera rétthyrnd, aflöng spjöld, 130 mm á hæð. Stafir skulu vera með steinskrift, þrykktir í spjaldið. Rönd skal vera á brúnum, 5 mm breið, þrykkt á sama hátt. Stafir og rönd skulu vera fægð og bera sama lit málmsins, en grunnur með svartri, gljálausri málningu. Stafir skulu vera 90 mm á hæð, 55 mm á breidd og breidd stafleggja 15 mm. Bil milli tölustafa skal vera 10 mm en bil milli bókstafs og tölustafa 30 mm. Á stafi og rönd skráningarmerkis er heimilt að setja hvítt glitefni af gerð sem Umferðarstofa viðurkennir. Sjá upplýsingaskjal (US.325).
[Létt bifhjól skráð fyrir 30. júní 1970:
Merki af þessari gerð skulu vera rétthyrnd, aflöng spjöld, með rauðum stöfum á hvítum grunni. Hæð stafa skal vera 40 mm. Framan við tölurnar skal vera einkennisbókstafur lögsagnarumdæmis.
Létt bifhjól skráð frá 1. júlí 1970 til 18. febrúar 1976:
Merki af þessari gerð skulu vera rétthyrnd, aflöng spjöld, með rauðum stöfum á hvítum grunni. Hæð stafa skal vera 45 mm. Framan við tölurnar skal vera einkennisbókstafur lögsagnarumdæmis.
Létt bifhjól skráð frá 19. febrúar 1976 og seinna (en þó 25 ára):
Merki af þessari gerð skulu vera rétthyrnd, aflöng spjöld, 70 mm á hæð og með hvítum, glituðum stöfum á rauðum grunni. Stafir skulu vera með steinskrift, þrykktir í spjaldið og 45 mm á hæð. Framan við tölurnar skal vera einkennisbókstafur lögsagnarumdæmis.]10
Þungt bifhjól að árgerð 1949 og eldra: Merki af þessari gerð skulu vera rétthyrnd, aflöng spjöld, úr 2 mm þykku járni, 90 mm á hæð og lengd eftir fjölda stafa. Stafir skulu vera hvítir, málaðir eða gleraðir, með steinskrift á svartan málaðan eða gleraðan grunn. Stærð stafa skal vera þessi: hæð 65 mm, breidd 40 mm og breidd stafleggja 12 mm. Framan við tölurnar skal mála einkennisbókstaf lögsagnarumdæmis og skal vera strik á milli bókstafs og tölustafa sem er 18 mm langt og 10 mm breitt. Bil milli stafa skal vera að minnsta kosti 8 mm. Sjá sýnishorn á upplýsingaskjali (US.326).
Þung bifhjól að árgerð 1950 og yngra (en þó 25 ára): Merki af þessari gerð skulu vera rétthyrnd, aflöng spjöld, 70 mm á hæð og lengd eftir fjölda stafa. Stafir skulu vera hvítir, með steinskrift á svartan grunn. Stærð stafa skal vera: hæð 50 mm, breidd 30 mm og breidd stafleggja 8 mm. Framan við tölurnar skal vera einkennisbókstafur lögsagnarumdæmis. Bil milli stafa skal vera að minnsta kosti 8 mm. Sjá upplýsingaskjal (US.327).
Dráttarvélar (25 ára): Merki af þessari gerð skulu vera rétthyrnd, aflöng spjöld, 70 mm á hæð og lengd eftir fjölda stafa. Stafir skulu vera rauðir, með steinskrift á hvítan grunn. Stærð stafa skal vera þessi: hæð 50 mm, breidd 30 mm og breidd stafleggja 8 mm. Framan við tölurnar skal vera einkennisbókstafur lögsagnarumdæmis og bókstafurinn d. Stærð bókstafsins d skal vera: hæð 27 mm, breidd 16 mm og breidd stafleggs 5 mm. Sjá sýnishorn á upplýsingaskjali (US.328).
5) 10.09.2007
6) 01.07.2008
7) 01.07.2008
8) 08.11.2010
9) 27.01.2011
10) 01.07.2011



