Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 1
Útg.dags: 13.02.2003

2. Eigendaskráning

2.6.11 Riftun eigendaskipta

 

Riftun eigendaskipta: Ef kaupandi og seljandi vilja rifta eigendaskiptum skulu þeir framvísa yfirlýsingu um riftun eða nýrri eigendaskiptatilkynningu.

Yfirlýsing um riftun: Aðilar eigendaskipta útbúa yfirlýsingu um riftun á tilteknu ökutæki sem er undirrituð af aðilum og vottuð af tveimur vitundarvottum (sjá sýnishorn að neðan).

Eigendaskiptatilkynning: Aðilar framvísa nýrri eigendaskiptatilkynningu þar sem kaupandi er skráður seljandi og seljandi er skráður kaupandi. Efst á tilkynninguna skal skrifa "Riftun".

Skráning riftunar: Ef búið er að skrá fyrri eigendaskipti er riftun færð eins og þegar um ný eigendaskipti er að ræða og bæði eigendaskiptin sjást í eigendaferli. Ef fyrri tilkynningin hefur ekki verið skráð í ökutækjaskrá er hvorug þeirra skráð í ökutækjaskrá.

Gjald: Fyrir skráningu á riftun ber að greiða gjald samkvæmt gjaldskrá Umferðarstofu.

Skráningarskírteini: Ef ný eigendaskipti eru skráð við riftun er nýtt skráningarskírteini prentað út og sent nýjum eiganda.

Sýnishorn af riftunaryfirlýsingu:
Við undirritaðir Jón Jónsson, kt. 111111-9999 og Sigurður Sigurðsson, kt. 222222-9999 riftum hér með eigendaskiptum að ökutækinu AA-111 sem fram fóru þann 1. janúar 1999.
Reykjavík, 10. janúar 1999
Jón Jónsson (sign)
Sigurður Sigurðsson (sign)
Vitundarvottar:
Jóna Jónsdóttir (sign), kt. 333333-9999
Sigríður Sigurðardóttir (sign), kt. 444444-9999.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++