Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 1
Útg.dags: 31.05.2005

1. Skráning ökutækja

1.9.9.2 Mat tjónabifreiða

Tjónabifreið: Tjónabifreið er bifreið sem hefur orðið fyrir tjóni sem getur haft áhrif á aksturseiginleika hennar og akstursöryggi skv. 2. gr. reglugerðar um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.

Burðarvirki bifreiðar: Til burðarvirkis bifreiðar heyrir sjálfberandi yfirbygging, grind þar sem það á við, öryggisbúr farþega og burðar- og öryggisbitar.                                                                              
Ef eitthvað af neðangreindum atriðum á við um bifreið má ætla að hún sé tjónabifreið:

 - Ás eða hjól hefur gengið til og sýnileg merki eru um að hjóla- eða stýrisbúnaður hafi bognað eða færst úr stað.
 - Sýnileg merki eru um að burðarvirki yfirbyggingar eða sjálfstæð grind hafi bognað. Sérstaklega skal athuga festingar fyrir fjaðrabúnað og stýrisbúnað. Kýttur grindarendi myndar oftast skekkju á hjóla- og stýrisbúnaði.
 - Sýnileg merki eru um snúning á yfirbyggingu. Sérstaklega skal athuga göt fyrir framrúðu og hurðir.
 - Þverbrot í þaki er öruggt merki um skekkju í burðarvirki (brotið er oft sýnilegt ofan við aftari framhurðarstaf).
 - Ef um hliðartjón er að ræða skal athuga hurðarbil á þeirri hlið sem óskemmd er. Ef bil er gleiðara í miðju en að framan eða aftan er burðarvirkið bogið um langás.

Skoðunarmenn tjónaskoðunardeildar tryggingafélaga og faggiltra skoðunarstofa geta endurmetið tjónamat lögreglu og tollvarða.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++