Upplýsingatorg
| Útg.nr: | 3 |
| Útg.dags: | 04.11.2010 |
1. Skráning ökutækja
1.9.9.1 Skráning tjónabifreiðar
Tjónabifreið: Bifreið sem hefur orðið fyrir tjóni sem getur haft áhrif á aksturseiginleika hennar og akstursöryggi skv. 2. gr. reglugerðar um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.
Tilkynning um tjónabifreið: Tilkynning um tjónabifreið getur borist frá lögreglu, tollstjóra, tryggingafélagi eða Umferðarstofu.
Skráning á tjónabifreið: Umferðarstofa annast skráningu á tjónabifreiðum. Ef tjón er tilkynnt af lögreglu eða tollstjóra er athugasemdin "Tjónabifreið I" skráð á viðkomandi ökutæki. Ef tjón er skráð á grundvelli erlendra skráningargagna eða tilkynningar frá tryggingafélagi er athugasemdin "Tjónabifreið II" skráð á viðkomandi ökutæki. Athugið þó að ef ástæða tjónaskráningar er "líkur á tjóni" skal meðhöndla málið með öðrum hætti (sjá neðst).
Skráningarmerkjum skilað inn: Ef skráningarmerki tjónabifreiðar eru lögð inn skal skrá ökutækið úr umferð og ástæðan er tilgreind sem "afklippt vegna tjóns."
Bréf til eiganda um tjónaskráningu: Þegar bifreið hefur verið skráð tjónabifreið er prentað út nýtt skráningarskírteini og það sent samdægurs til eiganda/umráðamanns ásamt tilkynningu um tjónaskráningu sem inniheldur leiðbeiningar til eiganda. Hafi bifreiðin verið tilkynnt tjónabifreið af lögreglu eða tollstjóra ("Tjónabifreið I") skal eiganda sent bréf en hafi bifreið verið skráð tjónabifreið á grundvelli tilkynningar frá tryggingafélagi ("Tjónabifreið II") skal eiganda sent bréf (US.225). Á tilkynninguna skal skrá fastanúmer bifreiðar og dagsetningu tjónaskráningar. Skráð er að bréf hafi verið sent.
Endurmat á tjónabifreið: Einungis er gefinn kostur á endurmati á tjónabifreið ef tilkynning um tjónabifreið barst frá lögreglu eða tollstjóra, þ.e.a.s. þær bifreiðar sem eru skráðar með athugasemdina "Tjónabifreið I". Bifreiðar sem eru skráðar "Tjónabifreið II" hafa ekki kost á að fara í endurmat.
Tilkynning um endurmat: Tilkynning um endurmat verður að berast innan 15 daga frá dagsetningu tilkynningar til eiganda. Tilkynning um endurmat verður að berast frá faggiltri skoðunarstofu eða tjónaskráningardeild tryggingafélags þar sem staðfest er að bifreið sé ekki tjónabifreið (US.117). Berist slík tilkynning frá fyrrgreindum aðilum skal tjónaskráning felld niður, athugasemdum um tjónaskráningu eytt og skráningin sést ekki í skráningarferli. [Ef að bifreið fær endurmat tjóns skal ástæðu skráningar úr umferð vera breytt úr "v/tjóns" í "v/vanbúnaðar"]1)
Breyting á tjónaskráningu:
A. Viðurkennt réttingaverkstæði: Ef vottorð berst frá viðurkenndu réttingaverkstæði (US.358) um viðgerð á tjónabifreið skal fella niður tjónaskráninguna. Athugasemd um tjónabifreið er gerð ógild en skráningin sést áfram í skráningarferli.
B. Skoðunarstofa: Ef staðfestingu á skoðun tjónabifreiðar frá faggiltri skoðunarstofu er framvísað og vottorðum um hjólastöðu- og burðarvirkismælingu (US.355) skal breyta tjónaskráningu í "viðgerð tjónabifreið". Athugasemd um tjónabifreið er gerð ógild og skráð er athugasemdin "Viðgerð tjónabifreið". [Skoðunarstofa áframsendir burðarvirkisvottorð og hjólastöðuvottorð til Umferðarstofu.]2)
Vottorð um viðgerð: Ganga skal úr skugga um að vottorð um viðgerð hafi verið gefin út og undirrituð af réttum aðila. Upplýsingar um aðila sem hafa leyfi til að undirrita vottorðin er að finna á lista yfir viðurkennd réttingaverkstæði (US.358) og lista yfir hjólastöðu- og burðarvirkisvottorð (US.355).
Skráningarskírteini: Ef ökutæki er skráð sem "viðgerð tjónabifreið" skal prenta út nýtt skráningarskírteini og senda eiganda/umráðamanni.
Skráning í umferð: Óheimilt er að skrá tjónabifreið í umferð. Áður en bifreið er skráð í umferð að nýju verður að fella niður tjónaskráningu eða breyta henni í "viðgerð tjónabifreið" sbr. reglur hér að ofan.
Nýskráning/endurskráning: Óheimilt er að nýskrá eða endurskrá ökutæki sem skráð tjónabifreið. Áður en bifreiðin er skráð í umferð að nýju verður að fella niður tjónaskráningu eða breyta henni í "viðgerð tjónabifreið" sbr. reglur hér að ofan.
Gjald fyrir breytingu á tjónaskráningu: Fyrir breytingu eða niðurfellingu á tjónaskráningu skal innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá Umferðarstofu. Ef vottorð um viðgerð tjónabifreiðar eru móttekin í afgreiðslu skal innheimta gjaldið við móttöku vottorðanna. Ef vottorð um viðgerð berast frá skoðunarstofu skal skuldfæra gjaldið á viðkomandi skoðunarstofu að lokinni breytingu á tjónaskráningu.
Ástæða tjónaskráningar "Líkur á tjóni": Ef tilgreind ástæða tjónatilkynningar (á tilkynningu) er sú að líkur þykja á því að bifreiðin sé tjónabifreið vegna þess að hún hefur lent í árekstri við tjónabifreið skal ekki skrá neitt í ökutækjaskrá fyrr en búið er að gefa eiganda bifreiðarinnar færi á að láta endurmeta bifreiðina. Senda skal eiganda/umráðamanni bifreiðar tilkynningu um skráningu tjónabifreiðar. Á tilkynninguna er skráð fastanúmer bifreiðar og dagsetning og veittur 15 daga frestur til að láta endurmeta tjón. Skráningaraðili skal fylgjast með veittum fresti. Ef niðurstaða endurmats berst innan frestsins og niðurstaðan er sú að bifreiðin telst ekki vera tjónabifreið er bifreiðin ekki skráð tjónabifreið og ekkert frekar gert í málinu. Ef hins vegar ekki er framvísað niðurstöðu endurmats innan frestsins eða ef niðurstaða endurmatsins er sú að bifreiðin er tjónabifreið skal bifreiðin skráð tjónabifreið.
1) 22.09.2005
2) 11.02.2009
3) 04.11.2010



