Upplýsingatorg
| Útg.nr: | 2 |
| Útg.dags: | 03.01.2008 |
1. Skráning ökutækja
1.8.6 Ökutæki staðsett erlendis
Heimild: Almennt er ekki hægt að skrá ökutæki á Íslandi ef það er staðsett erlendis og verður ekki flutt til landsins. Slíkt er þó heimilt ef [Vegagerðin]1 hefur gefið leyfi til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Forskráning: Með umsókn um forskráningu skal framvísa heimild [Vegagerðarinnar]2. Að öðru leyti er forskráning framkvæmd með hefðbundnum hætti.
Skráningarskoðun: Skráningarskoðun fer fram í skoðunarstofu sem Umferðarstofa viðurkennir í einhverju EES-landi.
Nýskráning: Við nýskráningu skal framvísa skoðunarvottorði er staðfestir að ökutæki hafi staðist skráningarskoðun. Að öðru leyti er nýskráning framkvæmd með hefðbundnum hætti.
1) 03.01.2008
2) 11.06.2008



