Upplýsingatorg
| Útg.nr: | 1 |
| Útg.dags: | 18.05.2005 |
1. Skráning ökutækja
1.10.3 Samanburðarskoðun
Samanburðarskoðun: Heimilt er að framkvæma samanburðarskoðun á nýjum heildargerðarviðurkenndum ökutækjum ef í athugasemdareit þeirra kemur fram að þau skuli færð til samanburðarskoðunar. Samanburðarskoðun getur einungis farið fram á skoðunarstofu.
Ökutæki: Ný gerðarviðurkennd ökutæki sem eru flutt inn af öðrum en umboði með fulltrúa skulu færð til samanburðarskoðunar. Ný gerðarviðurkennd ökutæki sem ekki eru með skráða gerð skulu einnig færð til samanburðarskoðunar.
Skilyrði samanburðarskoðunar: Við samanburðarskoðun skal uppfylla sömu skilyrði og við fulltrúaskoðun eftir því sem við á (1.10.1).
Niðurstaða samanburðarskoðunar: Niðurstaða samanburðarskoðunar getur eingöngu verið "Án athugasemda" en hún getur ekki verið "Endurskoðun" eða "Lagfæring". Ef ökutæki fær athugasemd við skoðun er unnt að breyta innflutningsástandi þess í "Nýtt" og færa það til skráningarskoðunar þar sem það fær endurskoðun eða lagfæringu eftir því sem við á.
Eftirlit með gasbúnaði í ökutækjum: Ef Umferðarstofu berst tilkynning frá Vinnueftirlitinu um ökutæki með ólöglegan gasbúnað skal það skráð í athugasemdum í ökutækjaskrá. Við nýskráningarskoðun (skráningarskoðun, fulltrúaskoðun eða samanburðarskoðun) skal skoðunarmaður athuga hvort ólögleg gastæki hafi verið fjarlægð. Ef gastækin hafa ekki verið fjarlægð eða skipt út fyrir lögleg gastæki skal skoðun og skráningu hafnað. Ef gasbúnaðurinn hefur verið fjarlægður eða úrbætur gerðar á og ökutækið stenst skoðun að öðru leyti skal athugasemdin fjarlægð og ökutæki nýskráð.



