Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 6
Útg.dags: 21.04.2009

1. Skráning ökutækja

1.10.1 Fulltrúaskoðun

Fulltrúi: Fulltrúi er aðili sem ábyrgist innflytjanda gagnvart Umferðarstofu varðandi gerðarviðurkenningu og skráningu ökutækja. Fulltrúi skal vera viðurkenndur af Umferðarstofu. Hann skal hafa góða þekkingu á lögum og reglum er varða skráningu ökutækja og hann skal vera vel að sér um þá ábyrgð og þær skyldur sem gerðarviðurkenning hefur í för með sér. Fulltrúaréttindi skiptast í þrjá flokka, A, B og C. Fulltrúi A hefur rétt til að annast gerðarviðurkenningu, forskráningu og nýskráningu, fulltrúi B hefur rétt til að framkvæma fulltrúaskoðun og annast nýskráningu og fulltrúi C hefur rétt til að annast fulltrúaskoðun og skráningu á gerðarviðurkenndum tengibúnaði.

Skilyrði fulltrúaréttinda: Til að öðlast fulltrúaréttindi þarf umsækjandi að sitja námskeið á vegum Umferðarstofu og standast skriflegt próf að því loknu [með einkunnina 7.0 að lágmarki]3. Til að viðhalda fulltrúaréttindum þarf fulltrúi að sækja upprifjunarnámskeið annað hvert ár og standast skriflegt próf/[verkefni]6 að því loknu. Alvarleg eða ítrekuð mistök af hálfu fulltrúa í starfi getur leitt til sviptingar á fulltrúaréttindum. [Ef fulltrúi hefur verið sviptur réttindum sínum tvisvar sinnum, mun hann ekki geta öðlast réttindin á nýjan leik.]5

Fulltrúaskoðun ökutækis - fulltrúi B: Fulltrúi B hefur rétt til að framkvæma fulltrúaskoðun ökutækis. Einungis má framkvæma fulltrúaskoðun á ökutæki sem er skráð á grundvelli gerðar sem er skráð á viðkomandi umboð (sjá kafla 1.1.1). Við framkvæmd skoðunar skal fulltrúi skoða neðangreind atriði (sjá Framkvæmd fulltrúaskoðunar). Niðurstaða fulltrúaskoðunar skal vera án athugasemda en þó er í vissum tilvikum heimilt að leiðrétta skráningu ökutækis í samræmi við niðurstöðu fulltrúaskoðunar.

Frávik við fulltrúaskoðun:  Ef fulltrúaskoðun leiðir í ljós frávik sem ekki er unnt að leiðrétta við nýskráningu skal hafna skoðun og er þá óheimilt að nýskrá ökutækið. Í þessum tilvikum þarf að hafa samband við Umferðarstofu þar sem frávik er skoðað. Ef frávik stafar af mistökum hjá Umferðarstofu eru þau leiðrétt án tafar. Ef frávik stafar af vali á rangri gerð eða röngum upplýsingum í gerðarskráningu þarf annaðhvort að sækja um nýja gerð eða leiðréttingu/breytingu á viðkomandi gerð. Að lokinni skráningu á nýrri gerð þarf að sækja um breytingu á skráningu viðkomandi ökutækis til samræmis við hina nýju gerð (US.406). Ef frávik leiðir af mistökum fulltrúa er það skráð í eftirlitskerfi Umferðarstofu.

Staðfesting og skráning fulltrúaskoðunar: Ef ökutæki stenst skoðun samkvæmt framansögðu skal sá fulltrúi sem framkvæmdi skoðunina staðfesta hana með undirritun sinni á staðfestingu á fulltrúaskoðun ökutækis (US.129). Fulltrúinn er skráður skoðunarmaður við fulltrúaskoðun og birtist í skoðunarferli ökutækis í ökutækjaskrá.

[Niðurstaða fulltrúaskoðunar: Niðurstaða fulltrúaskoðunar skal vera án athugasemda en þó er í vissum tilvikum heimilt að leiðrétta skráningu ökutækis í samræmi við niðurstöðu fulltrúaskoðunar. Niðurstöðum fulltrúaskoðunar er skilað til Umferðarstofu við nýskráningu ökutækis.]1)

Eftirlit með gasbúnaði í ökutækjum: Ef Umferðarstofu berst tilkynning frá Vinnueftirlitinu um ökutæki með ólöglegan gasbúnað skal það skráð í athugasemdum í ökutækjaskrá. Við fulltrúaskoðun skal fulltrúi athuga hvort hin ólöglegu gastæki hafi verið fjarlægð. Ef gastækin hafa ekki verið fjarlægð eða skipt út fyrir lögleg gastæki, skal skoðun og skráningu hafnað. Ef gasbúnaður hefur verið fjarlægður eða úrbætur gerðar og ökutæki stenst skoðun að öðru leyti skal athugasemdin fjarlægð og ökutæki nýskráð.

Framkvæmd fulltrúaskoðunar

Ökutæki: Fulltrúaskoðun má framkvæma á nýjum gerðarviðurkenndum ökutækjum sem eru forskráð á nafn umboðs með viðurkenndan fulltrúa.

Samræmi við gerðarviðurkenningu: Ganga skal úr skugga um að ökutæki sé í samræmi við þá gerð sem það er skráð eftir að því er varðar hönnun, innréttingu og búnað. Ef fulltrúi verður var við frávik frá gerð eða sérstaka annmarka á ökutækinu, t.d. vegna tjóns, skal hafna skoðun og skráningu.

Verksmiðjunúmer: Bera skal saman verksmiðjunúmer á ökutæki og í ökutækjaskrá. Mikilvægt er að bera saman alla stafi verksmiðjunúmersins. Ef um frávik er að ræða skal hafna skoðun og skráningu.

Þyngdartölur:
Bera skal saman þyngdartölur á ökutæki og í ökutækjaskrá. Ef um frávik er að ræða skal hafna skoðun og skráningu.

Ljósabúnaður: Athuga skal virkni ljósabúnaðar og ljós skulu vera rétt stillt. Ef um frávik er að ræða skal hafna skoðun og skráningu.

Viðvörunarþríhyrningur: Í öllum bifreiðum skal vera viðvörunarþríhyrningur (ekki nauðsynlegur í öðrum ökutækjum) [sem uppfyllir kröfur í reglugerð um gerð og búnað ökutækja.]2  Ef viðvörunarþríhyrningur er ekki til staðar skal hafna skoðun og skráningu.

[Skermun hjóla: Hjól bifhjóls skulu búin hjólhlífum sem uppfylla reglugerð um gerð og búnað ökutækja. Ef kröfur um hjólhlífar eru ekki uppfylltar skal hafna skoðun og skráningu.]2

Litur ökutækis: Bera skal saman skráðan lit og lit á ökutæki.  Ef litur er rangur í ökutækjaskrá skal réttur litur tilgreindur á nýskráningarbeiðni og er hann skráður í ökutækjaskrá við nýskráningu.

Sætafjöldi: Bera skal saman skráðan sætafjölda og sætafjölda í ökutæki. Öll sæti verða að hafa öryggisbelti. Ef um frávik er að ræða skal hafna skoðun og skráningu.

Hjólbarðastærð: Bera skal saman hjólbarðastærð ökutækis og skráða hjólbarðastærð. Ef hjólbarðastærð ökutækis er röng en rétt stærð er skráð í athugasemdareit beiðninnar er nægilegt að merkja við rétta stærð á beiðninni. Ef rétt stærð er ekki skráð á nýskráningarbeiðni skal hafna skoðun og skráningu.

Staða akstursmælis: Við fulltrúaskoðun skal tilgreina stöðu akstursmælis í km á nýskráningarbeiðni. Ef ökutæki er með heildarþyngd 5000 kg eða minna og staða mælis er 1000 km eða meira eða ef ökutæki er með heildarþyngd meiri en 5000 kg og staða mælis er 2500 km eða meira skal breyta stöðu ökutækis úr "Nýtt gvk" í "Notað gvk. skv. mæli".

Tengibúnaður: Ef um er að ræða þjóðargerðarviðurkenndan tengibúnað skal framvísa beiðni um skráningu tengibúnaðar með nýskráningarbeiðni (US.112). Ef tengibúnaður er ekki gerðarviðurkenndur skal framvísa staðfestingu á breytingaskoðun tengibúnaðar hjá skoðunarstofu með nýskráningarbeiðni.

Notkunarflokkur: Notkunarflokkur er almennt skráður sem "Almenn notkun". Ef ætlunin er að nota ökutækið sem bílaleigubifreið getur fulltrúi umboðs óskað eftir slíkri skráningu. Ef skrá á ökutæki sem kennslubifreið, leigubifreið eða í neyðarakstur skal færa það til skoðunar fyrir breytingu á notkunarflokki.

Skattflokkur: Almennt er ökutæki skráð í skattflokk 00 (ökutæki án skattflokks). Ef ökutæki er dísilbifreið með heildarþyngd undir [10.000 kg]4 og bifreiðin ber mæli vegna þungaskatts skal skrá hana í skattflokk 01.

Skráningarflokkur: Með skráningarflokki er átt við þann flokk sem skráningarmerki ökutækisins tilheyra t.d. almenn-, vsk- eða einkamerki. Mikilvægt er að tilgreina réttan flokk í samræmi við þau merki sem sett hafa verið á ökutækið.

Skráningarnúmer: Tilgreina skal þá áletrun sem er á skráningarmerkjum ökutækisins. Mikilvægt er að tilgreina rétta áletrun.

Fulltrúaskoðun tengibúnaðar: Fulltrúi C hefur rétt til að annast fulltrúaskoðun og skráningu á gerðarviðurkenndum tengibúnaði. Ef ökutæki ber þjóðargerðarviðurkenndan tengibúnað er heimilt að skrá hann á grundvelli skoðunar fulltrúa. Í beiðni um skráningu tengibúnaðar (US.112) skal koma fram yfirlýsing fulltrúa um að tengibúnaður sé í samræmi við tilgreinda gerðarviðurkenningu.

1) 12.10.2005
2) 10.10.2006
3) 10.01.2008
4) 10.09.2008
5) 16.03.2009
6) 21.04.2009


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++