Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

okukennari.jpgÖkukennararéttindi

Lögreglustjóri annast afgreiðslu umsókna um löggildingu ökukennara

Þeir sem óska eftir útgáfu ökukennararéttinda eða endurnýjunar eldri réttinda skulu snúa sér til lögreglustjóra í sínu umdæmi. Á grundvelli fyrirliggjandi gagna tekur lögreglustjóri ákvörðun um löggildingu ökukennara, sem frá og með sama tíma verður tilgreint með sérstakri innlendri tákntölu í dálk 12 á ökuskírteini viðkomandi, neðan við ökuréttindaflokkana. Aftan við viðeigandi tákntölu skal tilgreindur lokadagur réttindanna. Formlegur útgefandi réttindanna verður ríkislögreglustjóri, en lögreglustjórar annast þetta verkefni í hans umboði. Synjun um útgáfu eða ákvörðun um sviptingu eða afturköllun réttinda tekur lögreglustjóri í umboði ríkislögreglustjóra, en ákvörðun lögreglustjóra er kæranleg til dóms- og kirkjumálaráðuneytisins.

 

Ökukennaranám

  • Námskrá fyrir ökukennaranám til almennra ökuréttinda var staðfest af samgönguráðherra janúar 2005.
  • Kennsluskrá í samræmi við námskrá hefur verið gefin út af SRR, Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf - Kennaraháskóli Íslands.
  • Allar nánari upplýsingar um ökukennaranám má fá á vef SRR, Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf - KHÍ, um ökukennaranám.
Í reglugerð um löggildingu ökukennara og starfsleyfi ökuskóla nr. 327/1999 með áorðnum breytingum segir m.a.:
Löggildingu sem ökukennari má veita þeim sem:
a.  er 21 árs að aldri,
b.  hefur ekið bifreið, eftir atvikum bifhjóli, að staðaldri síðustu þrjú árin,
c.  hefur staðist sérstakt próf fyrir ökukennara að afloknu ökukennaranámi og
d.  fullnægir kröfum um líkamlegt og andlegt hæfi sem gerðar eru til ökumanna sem annast farþegaflutninga í atvinnuskyni.
Heimilt er að synja um löggildingu ef ákvæði 2. mgr. 68. gr. almennra hegningarlaga eiga við. Synjunin skal að kröfu hlutaðeigandi borin undir dómstóla samkvæmt reglum 68. gr. almennra hegningarlaga.
Löggilding ökukennara skal veitt til að annast kennslu fyrir einstaka flokka ökutækja:
-  flokk B (fólksbifreið/sendibifreið),
-  flokk A (bifhjól) og
-  flokka C, D og E (vörubifreið, hópbifreið og stór eftirvagn/tengitæki).
   Löggildingin gildir einnig til kennslu fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni.
Löggildingu fyrir flokk A og flokkana C, D og E má einungis veita þeim sem hefur fengið löggildingu fyrir flokk B. Umsækjandi um löggildingu fyrir flokkana C, D og E skal auk þess hafa reynslu af akstri slíkra ökutækja í a.m.k. tvö ár.
(1. og 2. grein reglugerðar um löggildingu ökukennara og starfsleyfi ökuskóla, nr. 327/1999)



Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++