Ökuréttindi
Endurnýjun ökuréttinda eldri borgara
Við 70 ára aldur þarf að endurnýja almenn ökuréttindi (B).
Framvísa þarf læknisvottorði og mynd.
Endurnýjun á Höfuðborgarsvæðinu á sér stað hjá:
Sýslumanninum í Kópavogi (Dalvegi 18, 201 Kópavogi. Afgreiðsla opin kl. 08:30-15:00),
Sýslumanninum í Hafnarfirði (Bæjarhrauni 18, 220 Hafnarfirði. Afgreiðsla opin kl. 08:30-15:00) og
annars staðar á landinu á skrifstofu viðkomandi sýslumanns.
| Aldur umsækjanda | gildistími | |
| 1 | Hafi umsækjandi náð 70 ára aldri en ekki orðinn 71 árs | 4 ár |
| 2 | Hafi umsækjandi náð 71 árs aldri en ekki orðinn 72 ára | 3 ár |
| 3 | Hafi umsækjandi náð 72 ára aldri en ekki orðinn 80 ára | 2 ár |
| 4 | Hafi umsækjandi náð 80 ára aldri | 1 ár |



