Ökuréttindi
Svipting og endurveiting ökuréttinda
Sá sem sviptur hefur verið ökuréttindum um lengri tíma en eitt ár öðlast ekki ökuréttindi að nýju að loknum sviptingartíma nema hann standist hæfnispróf.
Hæfnispróf fer fram með sama hætti og venjulegt ökupróf. Það er bæði skriflegt og verklegt.
Verklegt próf má ekki fara fram fyrr en einum mánuði áður en sviptingartímabil rennur út.
Sé um skemmri sviptingu að ræða en 3 ár er umsókn um ökuskírteini lögð inn eftir því sem hér segir:
Á Höfuðborgarsvæðinu hjá:
Sýslumanninum í Kópavogi (Dalvegi 18, 201 Kópavogi. Afgreiðsla opin kl. 08:30-15:00),
Sýslumanninum í Hafnarfirði (Bæjarhrauni 18, 220 Hafnarfirði. Afgreiðsla opin kl. 08:30-15:00) og
annars staðar á landinu á skrifstofu viðkomandi sýslumanns.
Ríkislögreglustjóri getur heimilað endurveitingu ökuréttar í tilvikum þar sem um er að ræða lengri sviptingu en þrjú ár eða ævilangt. Hafi maður verið sviptur ökurétti ævilangt má þó eigi veita ökurétt að nýju fyrr en svipting hefur staðið í fimm ár.
Lögreglustjórar annast framkvæmd endurveitinga í umboði Ríkislögreglustjóra. Sækja skal skriflega um endurveitingu, á þar til gerðu eyðublaði, hjá lögreglustjóra óháð búsetu umsækjanda. Umsókn um endurveitingu ökuréttinda skal afhenda lögreglustjóra.



