Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

Ökunámsbækur

Við upphaf kennslu skal ökukennari afhenda ökunema ökunámsbók. Hún skal sýna ferli ökunáms frá upphafi þar til ökupróf er staðið.

Færðar verði í ökunámsbók þær upplýsingar um kennslustundir sem nemi tekur í ökuskóla og hjá ökukennara, svo og upplýsingar um þann tíma sem varið er til æfingaaksturs með leiðbeinanda.

Ökunámsbók skal gerð samkvæmt fyrirmælum Umferðarstofu.

Hér eru birtar ökunámsbækur fyrir réttindaflokka B, A, M, C, D, E og B farþegaflutninga í atvinnuskyni. Bækurnar eru birtar á PDF sniði. 

Ökukennurum er frjálst að fjölfalda ökunámsbækur þessar til nota fyrir nemendur sínar. Bækurnar skulu þá prentaðar með sama innihaldi og ökunámsbækur útgefnar af Umferðarstofu á hverjum tíma (texti / myndir / grafík). Kápur skulu vera á 120 gr. pappír hið minnsta og í fjórlit. Bækur skulu prentaðar á A5 sniði.

Ökunámsbækur eru fáanlegar hjá Frumherja hf og er verð þeirra sem hér segir:

 Flokkur

kr 

 A

100

 B

200

 M

 50

 B farþegaflutningar í atvinnuskyni

 50

 C

 50

 D

 50

 CE/DE

 50




Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++