Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

log.jpg

Lög og reglur

Undir þessum lið er að finna lög, reglugerðir og starfsreglur er Umferðarstofa starfar eftir. Tenglar eru inn á tiltekin lög á vef Alþingis. Reglugerðir eru uppfærðar sérstaklega af Umferðarstofu með útgefnum breytingum, en ef upp kemur misræmi milli útgáfu Umferðarstofu og útgáfu  Stjórnartíðinda skal sú síðarnefnda ráða. Skráningarreglur í ökutækjaskrá eru gefnar út af Umferðarstofu, með stoð í lögum og reglugerðum um ökutækjaskráningar. Starfsreglur í skoðunarhandbók eru gefnar úr af samgönguráðuneytinu.

Lagabrunnur

Í Lagabrunn má sækja umferðarlög nr. 50/1987, uppfærð á vef Alþingis, frumvarp að lögunum, breytingarlög og frumvörp að þeim. Sjá má hvaða lagagreinar breyting varðar. Í brunninum eru einnig uppfærðar reglugerðir og reglur, settar samkvæmt umferðarlögum en einnig reglugerðir og reglur, eins og þær voru fyrst gefnar út, og breytingar á þeim.Vísað er til þeirra greina umferðarlaga sem reglugerðir og reglur eiga stoð í. Loks eru í brunninum nokkur lög sem tengjast verksviði Umferðarstofu.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++