Um Umferðarstofu
NorType
Umferðarstofa annast umsjón og framkvæmd NorType gagnagrunnsins, en það er samvinnuverkefni skráningaraðila ökutækja á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi sem hófst árið 2000. NorType gagnagrunnurinn inniheldur upplýsingar um tæknilegar útfærslur fólks og sendibifreiða skv. evrópskum heildargerðarviðurkenningum, Whole Vehicle Type Approvals (WVTA).
Í stað þess að frumgögnin séu skráð í hverju landi fyrir sig þá eru gögnin búin til hjá Umferðarstofu sem miðlar þeim til aðildarlandanna, sem síðan eru notuð til skráninga í ökutækjaskrá viðkomandi lands. Mikil áhersla er lögð á gæði og áreiðanleika gagnanna og er farið eftir ströngum skráningarreglum.
Í desember 2010 voru rúmar 700.000 færslur í NorType gagnagrunninum en árleg afköst Umferðarstofu hafa verið frá 50 til 200 þúsund færslur.



