Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Um Umferðarstofu

Umferðarfræðsla

Umferðarfræðsla miðar að því að gera alla vegfarendur upplýsta um lög og reglur er varða umferðina. Einnig að fólk öðlist skilning á því með hverjum hætti það skapar aukið umferðaröryggi. Til þess þarf að vera fyrir hendi vitneskja um fjölda slysa og eðli þeirra og orsakir.  Viðhorf alls almennings til umferðaröryggismála er lykilatriði til að ná tilætluðum árangri í samræmi við markmið umferðaröryggisáætlunar til ársins 2016.

Umferðarstofa leitast við að skapa sem mest öryggi í umferðinni fyrir alla hópa vegfarenda. Hún stýrir fræðslu og upplýsingamiðlun um umferðarmál og stuðlar að þátttöku og samstarfi allra aðila sem vinna að framgangi þeirra.

Umferðarstofa vinnur í samræmi við umferðaröryggisáætlun stjórnvalda til ársins 2016 að þeim markmiðum sem þar er að finna meðal annars að því að Ísland verði fyrirmyndarland í umferðaröryggismálum fyrir þann tíma.

Vinna þarf að því að ná fram hugarfarsbreytingu til þessara mála meðal allrar þjóðarinnar, auka hlutdeild allra hagsmunaaðila að málunum og skapa aukna virðingu fyrir lögum og reglum um umferðina, sem er lykilatriði til að koma í veg fyrir umferðarslys


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++