Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Um Umferðarstofu

starfsemi.jpg

Starfsemi Umferðarstofu

Umferðarstofa sinnir í meginatriðum þeim verkefnum sem Skráningarstofan og Umferðarráð hafa haft á undanförnum árum. Þar er um að ræða skráningu ökutækja, tæknileg atriði sem tengjast ökutækjum, umferðarreglur og reglur um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, forskriftir að skoðun ökutækja og eftirlit með skoðunarstofum og skráningu á evrópskum heildargerðarviðurkenningum ökutækja á EES-svæðinu fyrir Norðurlöndin. Einnig annast Umferðarstofa innleiðingu EES reglugerða um gerð, búnað og notkun ökutækja, umsjón og eftirlit með ökunámi og ökuprófum, slysaskráningar, fræðslu og miðlun upplýsinga um umferðaröryggismál og fleira. Umferðarráð verður eftir sem áður samráðsvettvangur 22 aðila sem fjalla um umferðarmál og láta sig umferðaröryggi varða.

Starf Umferðarstofu og Umferðarráðs á sviði umferðaröryggismála er í samræmi við umferðaröryggisáætlun stjórnvalda til ársins 2016. Samkvæmt henni er stefnt að 40% fækkun banaslysa og annarra alvarlegra slysa í umferðinni á því tímabili. Að þessu verður unnið í nánu samstarfi við alla þá sem þessum málum tengjast. Lögð verður áhersla á að leita nýrra leiða til að ná þessum markmiðum, bæði með miðlun upplýsinga og fræðslu og einnig með eflingu rannsókna á umferðarslysum til þess að auka skilning á eðli þeirra og orsökum. Mikilvægt er að ná víðtækri samstöðu og þátttöku allra vegfarenda um varnir gegn þessari vá. Umferðarstofa ber ábyrgð á framkvæmd umferðaröryggisáætlunar.

Umferðarstofa er staðsett í:
Borgartúni 30
105 Reykjavík

Einnig er Umferðarstofa staðsett með útibú í Stykkishólmi, þar er ekki opin afgreiðsla en þjónustuverið þar sér um að taka á móti ýmsum gögnum frá skoðunarstöðvum á landsbyggðinni og sér einnig um símsvörun fyrir stofnunina.

Umferðarstofa í Stykkishólmi er staðsett í:
Flugstöðinni Stykkishólmi
340 Stykkishólmur


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++