Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökuréttindi

Sektir og refsipunktar

Skrá um vægi brota í punktakerfi og önnur viðurlög sem fylgja þeim brotum svo sem sektir og sviptingar. Yfirlitið er úr reglugerð um ökuferilsskrá og punktakerfi, nr. 929/2006 og reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim nr. 930/2006. Viðurlög við umferðarlagabrotum og brotum á reglugerðum sem tengjast þeim eru aðallega sektir. Við alvarlegustu brotunum s.s. ölvunarakstri og grófum hraðabrotum er auk sekta beitt sviptingu ökuskírteinis í skemmri eða lengri tíma. Við ítrekuðum ölvunarakstri og mjög grófum brotum er auk þess heimilt að gera ökutækið upptækt.

Árið 1997 var tekið upp refsipunktakerfi á Íslandi en slíkt kerfi hafði reynst mjög vel meðal annarra þjóða. Kerfið gerir ráð fyrir að þeir brotlegu í umferðinni safni refsipunktum. Þegar punktar verða 12 á þriggja ára tímabili missir ökumaðurinn ökuréttindin í 3 mánuði. Refsipunktar fyrir brot fyrnast á þremur árum þ.e. punktar fyrir ákveðið brot falla niður af ökuferli ökumannsins þegar þrjú ár eru liðin frá broti. Við útsendingu sektartilkynningar er tekið fram hvort brotið leiði til refsipunkta og þá hversu margra. Einnig er tilgreint hversu marga punkta í heild ökumaðurinn hefur fengið. Refsipunktakvótinn er aðeins minni fyrir þá sem eru með bráðabirgðaskírteini sem er til þriggja ára. Þar er kvótinn 7 refsipunktar á þriggja ára tímabili.
Handhafi bráðabirgðaskírteinis, sem fær 4 refsipunkta í ökuferilsskrá, er settur í ótimabundið akstursbann. Ökuskírteinið fær hann ekki aftur fyrr en hann hefur sótt sérstakt námskeið og tekið ökupróf að nýju. Sama á við ef handhafi bráðabirgðaskírteinis fær sviptingu vegna ölvunaraksturs eða hraðabrots. Akstursbanni er aðeins beitt einu sinni.
Refsipunktum er beitt vegna alvarlegustu brotanna, þó ekki við ölvunarakstri því þar gilda sérstakar sviptinga- og sektarreglur.

Hér að neðan er tafla um þau umferðarlagabrot sem refsipunktakerfið tekur til og þær sektir sem þeim fylgir.

Í þeim tilvikum þegar hópbifreið, önnur bifreið sem er meiri en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd eða bifreið með með eftirvagn eða skráð tengitæki er ekið yfir lögleyfðum ökuhraða skal beita sektarfjárhæðum í eftirfarandi töflum að viðbættu 20% álagi á sektarfjárhæð.

 

Tegund brots Viðurlög

punktar

Sekt
krónur
Ekið á 26 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða (30-35 km)

3

25.000
Ekið á 36 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða (50-60 km)

3

40.000
-50.000
Ekið á 41 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða (70 km)

3

60.000
Ekið á 41 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða (80-90 km)

3

80.000 - 90.000

 

Tegund brots Viðurlög
punktar Sekt
krónur
Ekið gegn rauðu umferðarljósi

2

15.000
Ekið fram úr rétt áður en komið er að gangbraut eða á henni

2

10.000
Forgangur gangandi vegfarenda á gangbraut eigi virtur

2

10.000
Óhlýðni ökumanns við leiðbeiningu lögreglu

2

10.000
Eigi numið staðar og veitt hjálp

2

15.000
Vanrækt að tilkynna lögreglu um slys

2

10.000
Eigi virt stöðvunarskylda

2

15.000
Eigi virtur almennur forgangur á vegamótum o.fl. (hægri reglan)

2

10.000
Ökuhraði eigi miðaður við aðstæður

2

15.000
Ekið á 21-25 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (30-35 km)

2

20.000
Ekið 31-35 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (50-60 km)

2

30.000 - 40.000
Ekið 31-40 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (70 km)

2

50.000
Ekið 31-40 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (80-90 km)

2

60.000 - 70.000
Akstur bifreiðar eða bifhjóls án þess að hafa öðlast ökurétt (í annað sinn)

2

20.000

 

Tegund brots Viðurlög
punktar Sekt
krónur
Ekið gegn einstefnu 1 5.000
Bann við framúrakstri eigi virt 1 10.000
Ekið eftir gangstétt eða gangstíg 1 5.000
Ökutæki bakkað eða snúið við þannig að hætta eða óþægindi skapast fyrir aðra 1 10.000
Eigi virtur forgangur hópbifreiðar til aksturs frá biðstöð. 1 10.000
Eigi sýnd sérstök aðgát í námunda við merkta skólabifreið sem hefur stansað 1 10.000
Eigi vikið nægilega eða dregið úr hraða 1 5.000
Ekið hægra megin fram úr 1 10.000
Ekið vinstra megin fram úr ökutæki sem er að sveigja til vinstri 1 10.000
Eigi sýnd nægileg varúð við framúrakstur 1 10.000
Eigi vikið nægilega eða framúrakstur torveldaður 1 5.000
Ekið fram úr við eða á vegamótum 1 10.000
Ekið fram úr þegar vegsýn er skert 1 10.000
Eigi virt biðskylda 1 15.000
Ökuljós eigi tendruð þegar birta er ófullnægjandi 1 5.000
Ekið á 16-20 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (30-35 km) 1 15.000
Ekið 26-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (50-60 km) 1 25.000 - 30.000
Ekið 26-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (70 km) 1 40.000
Ekið 21-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða (80-90 km) 1 50.000
Brot á sérreglum fyrir bifhjól 1 10.000
Akstur bifreiðar eða bifhjóls án þess að hafa öðlast ökurétt (í fyrsta sinn) 1 10.000
Öryggisbelti ekki notað 1 10.000
Sérstakur öryggisbúnaður fyrir barn ekki notaður 1 10.000
Þess eigi gætt að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað 1 15.000
Viðurkenndur hlífðarhjálmur ekki notaður 1 5.000
Þess eigi gætt að farþegi yngri en 15 ára noti hlífðarhjálm 1 15.000
Notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiðar 1 5.000

 


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++