Umferðaröryggi
Frelsi með ábyrgð
Að ferðast um á bifhjóli getur verið skemmtilegt, þægilegt og spennandi. Hinsvegar er ökumaður bifhjóls nánast óvarinn ef hann lendir í árekstri. Hann getur skollið með fullum þunga á hvaða fyrirstöðu sem er án þess að bílbelti eða grind bifreiðar verndi hann og verji. Þess vegna er mikilvægt að hann viti af þeim hættum sem eru í kringum hann og taki alltaf tillit til þeirra.
Hafðu ljósin kveikt og notaðu viðurkenndan hlífðarfatnað og hjálm.
Algengar hættur sem verða á vegi bifhjólafólks eru m.a.:
- Mundu að þú sést illa jafnvel að degi til. Vertu með hjálm og hlífðarfatnað í áberandi litum eða með endurskini.
- Þegar þú kemur að gatnamótum þar sem þú átt forgang getur þú ekki verið viss um að aðrir vegfarendur taki eftir þér. Þótt þeir hafi litið í áttina til þín er mögulegt að þeir hafi ekki séð þig.
- Ef þú ert að fara fram úr bifreið þar sem tvær akreinar eða fleiri eru í sömu átt skaltu vera viðbúin því að ökumaðurinn sjái þig ekki í hliðarspegli. Hann gæti beygt í veg fyrir þig þótt hann hafi ekki gefið stefnuljós.
- Í þröngum götum þar sem bílastæði eru með fram götunni getur það gerst að bíl sé bakkað í veg fyrir hjólið.
- Lestu yfirborð vegarins vel. Vatn, möl, ryk, sandur, olíublettir, brunnlok og ójöfnur geta skapað hættu. Blautt malbik og blautar yfirborðsmerkingar geta verið hálar.
- Búfénaður fælist frekar bifhjól en bíla og þess vegna geta viðbrögð þeirra verið óvænt.
- Vindhviður geta tekið stjórn bifhjólsins úr höndum þínum, sérstaklega við brýr þar sem hliðarþrýstingur breytist snögglega. Einnig geta myndast hættulegir sviptivindar þegar þú mætir stórum bílum.
Upprifjun
Ekki vera feiminn við að viðurkenna þekkingarleysi á meðferð hjólsins. Ef þú viðurkennir það og leitar leiða til að æfa þig og bæta við þekkinguna minnka líkur á því að þú slasist alvarlega. Ef tilefni er til skaltu fá ökukennara til að rifja upp með þér og fara yfir eftirfarandi atriði:
- Hvernig er best að nauðhemla? Æfðu þig það mikið og vel að þú beitir réttum viðbrögðum sjálfkrafa ef þú þarft á að halda.
- Hvernig er best að beita hjólinu í beygju og hvað ef þú þarft að bremsa í beygju?
- Gerðu jafnvægisæfingar og lærðu hvernig best sé að aka yfir ójöfnur.
- Lærðu hvernig best sé að bregðast við því ef dekk springur, kúplingsbarki gefur sig, þú lendir í skaki og/eða bensíngjöf festist. Fáðu svör við því hvernig best sé að aka í hópi með öðrum bifhjólamönnum svo ekki sé talað um að vera með farþega á hjólinu.
Bílar og bifhjól
Það er mikilvægt að bílstjórar taki tillit til þess að bifhjólamenn eru vaxandi hluti vegfarenda og þeir hafa sama rétt í umferðinni og aðrir.
Mundu að bifhjól sjást ekki eins vel og bíll. Þau eru smærri, það er erfiðara að gera sér grein fyrir hraða þeirra og þau sýnast oft fjær en raun ber vitni. Gáðu tvisvar áður en þú ekur af stað á gatnamótum. Það er ekki nóg að gá – þú verður að sjá! Ekki aka af stað fyrr en að þú ert viss um að það sé óhætt.
Gefðu stefnuljós þegar þú skiptir um akrein og gerðu það tímalega. Það getur verið hjól við hlið þér eða rétt fyrir aftan bílinn og það eru töluverðar líkur á að þú sjáir ekki hjólið í hliðarspeglinum.
Að lokum - ekki fara í hlutverk sjálfskipaðrar lögreglu þótt þú látir akstursmáta einhvers fara í taugarnar á þér, sama hvort hann er á mótorhjóli eða bíl.
Góða ferð!
Fræðslumyndband - Hættur í akstri bifhjóla
You must install the Flash Player to watch this movie online.



