Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Útg.nr: 8
Útg.dags: 09.12.2011

1. Skráning ökutækja

1.9.5 Breytingalás á ökutæki

 
Almennt: Ef skráður er breytingalás á ökutæki kemur það fram í aðalupplýsingamynd ökutækjaskrár. Hér að neðan eru skýringar á því fyrir hvað hver lás stendur. Umferðarstofa metur hverju sinni hvort skilyrðum sé fullnægt og áskilur sér rétt til að hafna skráningu um breytingalás.

Eigendaskiptalás (1): Eigandi og fyrri eigandi geta óskað eftir skráningu breytingaláss á eigendaskipti að ökutæki. Ekki er unnt að skrá eigendaskipti að ökutæki sem ber þennan lás, nema eigandi fái áður tækifæri til að mótmæla skráningunni. Sjá nánar (2.6.9).

Lögreglulás (2): Lögregla getur óskað eftir lögreglulás á ökutæki. Ekki er unnt að skrá eigendaskipti, ökutæki í umferð eða afhenda skráningarmerki á ökutæki sem ber þennan lás. Lögregla verður að aflétta lásnum áður en unnt er að framkvæma skráningarnar. Þegar ökutæki er skráð eftirlýst er einnig settur lögreglulás á ökutækið. Sjá nánar (2.6.9).

Nýskráningarlás (3): Umferðarstofa getur óskað eftir nýskráningarlás á ökutæki. Ekki er unnt að nýskrá ökutæki sem ber nýskráningarlás og verður Umferðarstofa að aflétta lásnum áður en unnt er að nýskrá ökutæki.

Gjaldþrotalás (4): Skiptaráðandi í þrotabúi getur óskað eftir breytingalás á ökutæki hins gjaldþrota bús. Framvísa verður skipunarbréfi skiptastjóra með beiðni um breytingalás. [Ekki er unnt að framkvæma neinar skráningar á ökutæki sem er með þennan breytingalás.]7Skiptaráðandi verður að aflétta lásnum áður en unnt er að skrá eigendaskipti að ökutækinu.

Lögmannalás (5): Lögmaður getur óskað eftir skráningu á lögmannalás á ökutæki. Ekki er unnt að skrá eigendaskipti að ökutæki sem er með lögmannalás nema lögmaðurinn fái áður frest til að leysa úr máli. Sjá nánar (2.6.9).

Heildarlás (6): Umferðarstofa getur óskað eftir heildarlás á ökutæki. Ekki er unnt að framkvæma skráningar á ökutæki sem er með heildarlás. Umferðarstofa verður að aflétta lásnum áður en unnt er að framkvæma skráningar.

Skráning læst v/vörugjalds (7): Tollstjórar skrá sjálfir breytingalás 7 í ökutækjaskrá. Ekki er unnt að nýskrá eða endurskrá ökutæki sem ber þennan lás. Tollstjóri verður að aflétta lásnum áður en unnt er að nýskrá ökutæki.

[Námu[ökutæki]5) með kvöð (8): Umferðarstofa setur á breytingalás 8 ef námubifreið er skráð á grundvelli undanþáguheimildar í reglugerð um gerð og búnað.]2) [Óheimilt er að breyta notkunarflokki en hafa má eigendaskipti.]5)

[Lögveð vegna vörugjalds (9): Tollstjórar skrá sjálfir breytingalás 9 í ökutækjaskrá. Ekki er unnt að skrá eigendaskipti, breytingu á umráðamanni eða breytingu á notkunarflokki ef ökutæki ber breytingalás 9. Tollstjóri verður að aflétta lásnum áður en unnt er að framkvæma skráningu samkvæmt ofansögðu. Þó er heimilt að breyta notkunarflokki ökutækis fyrir og við nýskráningu, þótt á ökutæki hvíli breytingalás 9.]1)

[Einkamerkjalás (10): Ef ekki er búið að skila inn einkamerkjum sem fallin eru úr gildi er settur einkanúmeralás á viðkomandi ökutæki. Ekki er unnt að framkvæma neinar skráningar á ökutæki sem er með þennan breytingalás. Skila verður inn  útrunnum einkamerkjum eða endurnýja réttinn á þeim til að aflétta lásnum.]2)

Númeralás (11): Umferðarstofa setur númeralás á ökutæki þegar óheimilt er að afhenda skráningarmerki fyrr en ákveðin skilyrði eru uppfyllt.

[Niðurrifslás (12): Tryggingafélög geta óskað eftir niðurrifslás á ökutæki sem seld hafa verið til niðurrifs. Ökutæki með niðurrifslás getur eingöngu verið afskráð til úrvinnslu í kjölfarið. Óheimilt er að taka slíkt ökutæki í notkun á ný.]6 [Þá er óheimilt að selja slíkt ökutæki úr landi.]8

1) 28.01.2004
2) 01.09.2005
5) 19.09.2007
6) 08.10.2009
7) 03.06.2010
8) 09.12.2011


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++