Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Er kerran í lagi?

Varnaðarskýrsla vegna eftirvagna og tengitækja

 


 

Varnaðarskýrsla nr. 1/2007

Í varnaðarskýrslum Rannsóknarnefndar umferðarslysa koma fram upplýsingar um umferðarslys í forvarnarskyni. Upplýsingarnar varða eitt öryggisatriði eða fleiri sem rannsóknarnefndin telur tilefni til að fjalla um í sérstakri skýrslu.

 

 

Rannsóknarnefnd umferðarslysa
Húsi Flugbjörgunarsveitarinnar
Flugvallarvegi
101 Reykjavík
Sími 511 5040
Fax 511 5041
http://www.rnu.is


Útdráttur

Með þessari varnaðarskýrslu vill Rannsóknarnefnd umferðarslysa koma á framfæri upplýsingum um hættu sem því fylgir fyrir vegfarendur að eftirvagnar1 eða tengitæki séu notuð á rangan hátt í umferðinni og án nægilegs eftirlits. Nokkur slys hafa komið til skoðunar hjá nefndinni á undanförnum árum sem gefa tilefni til þess að vegfarendur gæti að því að eftirvagnar og tengitæki sem dregin eru af bifreiðum, bæði í atvinnustarfsemi sem og til einkanota, uppfylli kröfur sem gera má til ökutækja í almennri umferð. Þá hefur komið í ljós að eftirlit með þessum búnaði er ekki fullnægjandi eins og málum er nú háttað.

Mörg tilvik eru þekkt hér á landi þar sem eftirvagnar og tengitæki bila, hjól detta undan þeim eða þeir brotna hreinlega í sundur. Vitað er um tilvik þar sem eftirvagnar eða tengitæki hafa slitnað aftan úr bifreiðum á ferð og lent á ökutækjum sem komu á móti. Athygli vekur að eftirvagnar sem hafa leyfða heildarþyngd minni en 750 kg eru hvorki skráningar- né skoðunarskildir. Tengitæki, s.s. tjaldvagnar og hjólhýsi eru skráningarskyld, en ekki skoðunarskyld.

Í a.m.k. þremur slysum sem Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur rannsakað á undanförnum árum, hafa vegfarendur farist þar sem bifreiðar með eftirvagn áttu hlut að máli. Í öllum tilvikum voru alvarlegar athugasemdir gerðar við ástand eða hleðslu eftirvagnanna sem í hlut áttu.

Hér skal tekið eitt dæmi. Í slysi sem nefndin rannsakaði og sem varð á Vesturlandsvegi við Árvelli á Kjalarnesi (sjá skýrslu RNU um málið á vefnum www.rnu.is), kom í ljós að eftirvagn sem dreginn var á eftir bifreið sem hlut átti að slysinu var í mjög slæmu ástandi. Í skýrslu um skoðun sem framkvæmd var af sérfræðingum að beiðni lögreglu segir í niðurstöðum um ástand kerrunnar sem dregin var:

Verulegar líkur eru á að þessi eftirvagn (kerra) hefði ekki verið í umferð ef eftirlit yfirvalda með ökutækjaflokknum væri í eðlilegum farvegi og í samræmi við þá hættu sem ökutæki þessi geta valdið. Þessi niðurstaða er síður en svo einsdæmi um ástand þessa flokks ökutækja í umferðinni. Kerran, sem hér er rætt um, var dæmigerð jeppa- eða fólksbílakerra og er hvorki skráningar- né skoðunarskyld. Hún var dregin á hraða sem var nálægt hámarks umferðarhraða á fjölförnum þjóðvegi.

---------------
1
Eftirvagn er ökutæki sem aðalega er hannað til að vera dregið af öðru ökutæki, m.a. venjuleg kerra, tjaldvagnar, fellihýsi og hjólhýsi teljast til tengitækja skv. reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004 með síðari breytingum.


Hleðsla eftirvagna ¿ brotalöm í umferðaröryggismálum

Það hefur ítrekað komið í ljós að ökumenn gæta oft á tíðum illa að því að hleðsla eftirvagna sé í samræmi við fyrirmæli reglugerðar um hleðslu, frágang og merkingu farms nr. 554/2003. Nokkuð er um að farmur falli af og ástæða er til að skoða það af fullri alvöru hvort þurfi að herða fræðslu til ökumanna, atvinnubílstjóra sem annarra. Þekkt eru dæmi um að þung stykki falli af eftirvögnum og valdi umtalsverðri hættu. Í Morgunblaðinu þann 25. janúar 2006 segir um eitt slíkt tilvik:

.... Á undan bílnum var strætisvagn sem virtist vera að nema staðar og fór þá bílstjórinn að hemla líka. Skaust þá fólksbíll milli ökutækjanna tveggja og snarhemlaði þá vörubílstjórinn til að afstýra slysi. Við þetta rifnuðu festingar 12 tonna klumpsins á tengivagni vörubílsins með þeim afleiðingum að flikkið féll í götuna og skall utan í aðvífandi fólksbíl sem ók samsíða vörubílnum hægra megin. Ekki voru notaðir nægilega sterkir fjötrar á farminum, en notaðir voru tauborðar í stað keðja sem hefði verið öruggara. Sú vinnuskipun er í gildi að nota keðjur við þungaflutninga af þessu tagi en af einhverjum orsökum hafi því ekki verið fylgt í þetta skipti...”

Þá þekkist það einnig að farmur, sem ekki telst verulega þungur, fjúki af og valdi hættu fyrir umferð þar sem hann lendir á götunni eða öðru ökutæki.


Ábending til ökumanna

Rannsóknarnefndin vill hvetja þá sem eru með óskráðar kerrur í notkun að láta fagmenn kanna ástand þeirra og gæta að því að draga þær ekki nema vitað sé með vissu að ekki stafa hætta af notkun þeirra.

Þessu til viðbótar er ástæða til að vekja athygli þeirra sem eru með eftirvagna eða tengitæki í notkun á því að aksturseiginleikar bifreiða geta breyst mjög við að draga þau. Framleiðendur bifreiða gefa upp heimilaða þyngd eftirvagns eða tengitækis og má lesa upplýsingar um það í skráningarskírteini bifreiðar. Þar er gerður greinarmunur á því hvort ökutækið sem er dregið er búið hemlum eður ei. Enn fremur er mikilvægt að fylgja leiðbeiningum framleiðanda eftirvagns eða tengitækis um leyfða heildarþyngd. Full ástæða er til að hvetja ökumenn til að kynna sér hvað við á og vera vakandi fyrir þessum staðreyndum.

Allt of oft berast fréttir af farmi sem fellur af eftirvögnum og bifreiðum. Þetta skapar mikla hættu og ættu ökumenn ávalt að gæta vel að frágangi farms. Ganga verður frá farmi á þann hátt að hann falli ekki af við vind eða neyðarhemlun. Farmur sem er inni í farþegarými bifreiða þarf einnig að vera vel skorðaður.

Hægt er að leita sér nánari upplýsinga um eftirvagna og tengitæki hjá Umferðarstofu.

Ábending til stjórnvalda

Rannsóknarnefnd umferðarslysa hvetur yfirvöld til að hrinda í framkvæmd þeirri fyrirætlan sem sett var fram í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda fyrir árin 2002-2012 að gera alla eftirvagna skráningar- og skoðunarskylda. Um leið er ástæða til að vekja athygli á fjölgun tengitækja hér á landi, s.s. hjólhýsa og fellihýsa. Þessi flokkur ökutækja er skráningarskyldur en ekki skoðunarskyldur og því geta þau verið í notkun lengi án þess að vitað sé um ástand öryggisbúnaðar þeirra s.s. tengi- og hjólabúnaðar eða hemla. Tengitæki hafa breyst talsvert frá því að þær reglur sem um þau gilda voru settar. Framboð á stórum og þungum tjaldvögnum, fellihýsum og hjólhýsum hefur stóraukist. Nefndin hvetur stjórnvöld til að gera þennan ökutækjaflokk skoðunarskyldan.

Ekki er óvarlegt að áætla að með aukinni notkun þessara ökutækja verði meiri líkur á að fram komi bilanir sem leitt geta til alvarlegra slysa sem hægt væri að koma í veg fyrir með eftirliti. Þá er rík ástæða til að hvetja yfirvöld löggæslumála til að hafa öflugt eftirlit með kerrum sem dregnar eru í umferðinni og nota þau úrræði sem lög leyfa til að taka vanbúnar kerrur úr umferð og fylgjast með því að skráningarviðmið séu virt. Mjög margar kerrur tengjast frístundaiðkun ýmis konar og má þar nefna notkun þeirra við flutning á torfæruvélhjólum á keppnisstað, á hestum, vélsleðum, bátum eða golfbílum svo dæmi séu tekin. Reynslan sýnir að við slíka notkun skortir oft á tíðum mjög uppá að ökumenn hugi að þeim reglum sem gilda.


Samantekt

  • Fjöldi óskráðra eftirvagna og tengitækja er í notkun hér á landi. Í öðrum löndum sem Ísland ber sig saman við í umferðaröryggismálum eru eftirvagnar og tengitæki ávallt skráningarskyld.
  • Erfitt er að framfylgja skráningarviðmiðum. Eftirvagn sem kann að vera „óskráningarskyldur” samkvæmt umferðarlögum verður skráningarskyldur við ranga notkun, t.d. við hleðslu sem er umfram það sem hann er ætlaður fyrir eða sem reikna má að hann sé ætlaður fyrir.
  • Rannsóknarnefnd umferðarslysa hvetur notendur eftirvagna og tengitækja til að huga vel að frágangi farms.
  • Mörg tilvik eru þekkt þar sem eftirvagnar (kerrur) eða vagnar sem eru sannanlega í ólagi, bila, losna aftan úr bifreið eða eiga þátt í því að slys verður. Við slíkar aðstæður eru vegfarendur settir í óþarfa hættu.
  • Rannsóknarnefnd umferðarslysa hvetur til vakningar í þessum efnum og brýnir bæði Alþingi til að huga að lagabreytingum, yfirvöld til aðgerða og þá sem þessi tæki nota, til að gæta að öryggi þeirra.

Fræðslumyndband - Eftirvagnar

You must install the Flash Player to watch this movie online.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++