Umferðaröryggi
Öryggisbeltanotkun í hópbílum
Verkefnið felst í útgáfu fræðslu- og áróðursefnis fyrir leyfishafa hópbifreiða. Með skilaboðunum er reynt að hafa áhrif á að farþegar noti öryggisbelti þegar þeir ferðast með hópbifreiðum.
Ávinningur aðgerðanna er talinn vera fækkun alvarlega slasaðra um 0,3 og lítið slasaðra um 2,6 að meðaltali á ári. Fjöldi slysa í hópbifreiðum á árinu 2006 er nokkurn veginn svipaður og verið hefur undanfarin 5 ár, sbr. töflu 3 hér að neðan.



