Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Leiðbeinandi hraðamerkingar á þjóðvegum

Sett verða upp allt að 500 skilti með leiðbeinandi upplýsingum um ökuhraða á tiltekna staði á öllum stofnvegum og helstu tengivegum. Merkin verða sett upp á þeim stöðum þar sem ástæða þykir til að vekja athygli á að akstur á leyfðum hámarkshraða sé óráðlegur vegna akstursaðstæðna, svo sem vegna krappra beygja, blindhæða, brattra brekkna eða annað það sem hætta getur fylgt. Tilgangurinn er að upplýsa vegfarendur um öruggan ökuhraða en gert er ráð fyrir að skiltin gagnist mest óreyndum ökumönnum. Vænst er þess árangurs að látnum fækki um að meðaltali 0,3 og alvarlega slösuðum fækki um að meðaltali 0,9 á ári.
Talið er að leiðbeinandi hraðamerkingar nýtist erlendum ferðamönnum sérstaklega vel þar sem þeir þekkja ekki eins vel til íslenskra akstursaðstæðna og íslenskir ríkisborgarar.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++