Umferðaröryggi
2003
Ef þú bara...
|
|
Sjónvarps- og útvarpsauglýsingaherferð Umferðarstofu og Vegagerðarinnar ,,Ef þú bara . . ." hefur vakið verðskuldaða athygli og var meðal annars tilnefnd til ÍMARK-verðlauna á síðasta ári. Herferðinni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ýmsa áhættuþætti í umferðinni svo sem hraðakstur, ölvunarakstur og vannotkun á öryggisbeltum. Í auglýsingunum er hnitmiðuðum texta tvinnað saman við áhrifaríkt myndmál til að leggja áherslu á hinar hörmulegu afleiðingar umferðarslysa. Það er engin tilviljun að sjónum er beint að afleiðingum slysanna enda hefur sýnt sig að slík skilaboð hafa meiri áhrif en auglýsingar sem eingöngu vísa í boð og bönn.
Auglýsingarnar eru þrjár talsins og er hægt að skoða þær hér fyrir neðan. |



