Umferðaröryggi
Hjólbarðaskipti
Aðferð:
1. Setjið bílinn í gír og handhemilinn á og steina við hjól ef þörf krefur.
2. Setjið viðvörunarþríhyrninginn 50 - 100 m fyrir aftan bílinn.
3. Takið hjólkoppinn af og losið um allar felgurærnar, en takið þær ekki af.
4. Náið í varahjólbarðann og tjakkinn. Stillið tjakknum undir bílinn. Upplýsingar um hvar hann er og hvar á að setja hann undir er í eigandahandbókinni.
5. Lyftið bílnum þar til hjólbarðinn, sem skipt á um, er á lausu lofti.
6. Skrúfið felgurærnar af og takið sprungna hjólbarðann undan.
7. Setjið varahjólbarðann undir og skrúfið rærnar að - sú hlið róarinnar sem er með úrtakinu (koniska hliðin) á að snúa að hjólbarðanum (felgunni). Herðið rærnar á misvíxl, þannig að felgan sitji rétt á.
8. Slakið bílnum niður, takið tjakkinn undan og herðið allar rærnar aftur. Setjið hjólkoppinn á.



