Upplýsingatorg
Skráningarreglur ökutækja
Í skráningarreglum ökutækja er að finna þær verklagsreglur er gilda um skráningu í ökutækjaskrá. Verklagsreglurnar eru settar af Umferðarstofu til fyllingar þeim lögum og reglugerðum er gilda um skráningu ökutækja.
Nýjustu breytingar á skráningarreglum
Fulltrúaskoðun - viðbót: Við skilyrði fulltrúaréttinda bættist við það ákvæði að standast þyrfti skriflegt próf til fulltrúaréttinda að námskeiði loknu með einkunnina 7.0 að lágmarki , sjá kafla 1.10.1 Fulltrúaskoðun. (11.01.2008)
Afskráning - breyting: Skilyrði þess efnis að ökutæki sem væri tilkynnt týnt þyrfti að vera skráð eftirlýst af lögreglu í 8 vikur, var tekið út og sett í staðinn að það þyrfti að staðfesta af þar tilbærum aðila (Kafli 1.4 Afskráning). (10.01.2008)
Ökutæki erlendis - breyting: Vegagerðin gefur leyfi til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins í stað samgönguráðuneytis áður. Sjá kafla 1.8.6 Ökutæki erlendis. (03.01.2008)
Breytingaskráning - viðbót: Reglum um skráningu tengibúnaðar var bætt við kafla 1.6 Breytingaskráning. (24.09.2007)
Skráningarmerki - viðbót: Við kafla 3.7 Stærð og gerð, var bætt við lýsingu á útliti undanþágumerkja. (19.09.2007)
Breytingalás - viðbót: Frekari upplýsingum úr skráningarreglunum var bætt við texta við breytingarlás 8 - Námuökutæki með kvöð (kafli 1.9.5). (19.09.2007)
Skráningarmerki - breyting: kaflar 3.4 Afhending, 3.7 Stærð og gerð, 3.10.3 Einkamerki og 3.10.6 Fornmerki, voru aðlagaðir að breytingum á gerð skráningarmerkja. Hingað til hafa númerin verið þannig að fyrst koma tveir bókstafir og síðan þrír tölustafir. Með því að bæta bókstöfum við tölustafina í þriðja dálk númersins er hægt að stækka mögulegan númerafjölda upp í rúmar tvær milljónir númera. Hingað til hafa fastanúmer öll verið á forminu "AB 123", en geta nú einnig verið "AB C23". (10.09.2007)
Einkamerki - viðbót: Bætt hefur verið inn ákvæði í umferðarlögum þess efnis að skráður eigandi ökutækis skal fram að 65 ára aldri greiða sama gjald vegna endurnýjunar á rétti til einkamerkis (kafli 3.10.3). (23.08.2007)
Breytingaskráning - breyting: Bætt hefur verið við kafla 1.6 Ökutækisflokkur. Framvísa skal gögnum þegar ökutæki er breytt á milli ökutækisflokka er staðfesta að ökutækið uppfylli kröfur sem gerðar eru til hins nýja ökutækisflokks á þeim degi er ökutæki er fært til breytingaskoðunar, þ.m.t. gögnum um greiðslu opinberra gjalda.
Fulltrúaskoðun - breyting: Kafla 1.10.6 hefur verið breytt og þarf viðvörunarþríhyrningur að uppfylla kröfur sem gerðar eru í reglugerð um gerð og búnað ökutækja. Einnig þurfa hjól bifhjóls að vera búin hjólhlífum. (10.10.2006)
Afskráning: Gerðar hafa verið breytingar á afskráningarástæðum. Aðeins er heimilt að afskrá ökutæki sem týnt ef það hefur verið skráð eftirlýst af lögreglu í amk. 8. vikur. Heimilt er að skrá ökutæki sem hafa verið skráð úr umferð frá því fyrir 1. júlí 2003 afskráð sem ónýtt. Ekki er unnt að afskrá ökutæki úr landi nema framvísa staðfestingu á flutningi úr landi. Sjá nánar reglur um afskráningu 1.4. (15.09.2006)
Olíumerki og sérstök not: Gefnar hafa verið út skráningarreglur fyrir bifreiðar sem eru ætlaðar til sérstakra nota og mega nota litaða olíu. Ökutækin þurfa að bera sérstök skráningarmerki (olíumerki) sem eru með svarta stafi á gulum grunni. Fjallað er um skráningu bifreiða til sérstakra nota í skjali 1.9.3 og um olíumerki í skjali 3.10.13. (12.05.2006)
Erlend tjónagögn: Framvegis verður skráð athugasemd um erlend tjónagögn ef óskað er skráningar á ökutæki (öðru en bifreið) á grundvelli erlendra skráningargagna sem bera það með sér að ökutækið hafi verið skráð tjónaskráningu í fyrra skráningarlandi. Sjá nánar skjal 1.9.12.
Förgun skráningarmerkja: Framvegis verður einkamerkjum sem liggja inni og rétturinn er útrunninn fargað mánaðarlega.
Tekinn var út texti sem sagði að ef einkamerki hefði legið í geymslu í meira en eitt ár og ný umsókn bærist um sömu áletrun skyldi skráðum rétthafa send aðvörun um niðurfellingu réttarins. Ef rétthafi tæki ekki merkin í notkun innan tiltekins frests yrði heimilt að farga merkjunum og fella niður réttindin. Sjá reglur um förgun skráningarmerkja 3.9. (26.04.2006)
Framleiðsluár: Ef upplýsingar um fyrsta skráningardag notaðra ökutækja frá USA og Kanada liggja ekki fyrir skal lesa upplýsingar um framleiðsluár af ökutækjunum við skráningarskoðun þeirra og skrá þær í ökutækjaskrá við nýskráningu ökutækjanna. Sjá reglur um forskráningu 1.2.1, nýskráningu 1.3 og Aldur ökutækja 1.9.1. (1.02.2006)
Maki í óskiptu búi: Heimilt er að færa einkamerki yfir á eftirlifandi maka rétthafa án greiðslu réttindagjalds á grundvelli leyfis til setu í óskiptu búi. Framvísa verður búsetuleyfi sem er staðfest af sýslumanni. Nýr rétthafi gengur inn í rétt fyrri rétthafa og tekur við því sem eftir stendur af gildistíma réttarins. Sjá reglur um einkamerki 3.10.3. (06.01.2006)
Aldur ökutækja - carfax: Tekinn var út texti sem sagði að upplýsingar um aldur ökutækja frá USA og Kanada væru sóttar í Carfax. Sjá reglur um aldur ökutækja 1.9.1. (05.12.2005)
Eigendaskipti á vefnum: Bætt var við texta sem heimilar að tilkynna eigendaskipti á vefnum, sjá skjal 2.1. (05.12.2005)
Nýskráning eftir lista: Settar hafa verið inn sérstakar verklagsreglur fyrir þau umboð sem óska eftir nýskráningu eftir listum. Sjá nýtt skjal 1.3.1. (05.12.2005)
Skráningarreglur um námuökutæki - breyting: Skráningarreglum um námuökutæki hefur verið breytt í framhaldi af breytingu á skilgreiningu námuökutækja í reglugerð um gerð og búnað ökutækja. Breytingarnar koma fram í eftirfarandi skjölum: 1.8.8, 1.9.3, 3.10.8 og US.115). (17.11.2005)
Tjónabifreiðar - breyting: Kafla 1.9.9.1 hefur verið breytt á þann hátt að ef erlend tjónagögn bera með sér upplýsingar um viðgerða tjónabifreið þá fer sú athugasemd í skráningarskírteini og ökutækjaferil bifreiðar.



