Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg


Hér lýsum við og sýnum hvernig meðhöndla eigi umsókn um stafrænt ökuritakort.


Viðskiptavinur getur fengið umsóknareyðublað hjá Umferðarstofu, annaðhvort í þjónustuveri stofnunarinnar eða á netinu (http://us.is/id/4106).  Viðskiptavinurinn kemur til Umferðarstofu og gengur frá umsókn ásamt því að greiða kortaverðið.  Einnig getur viðskiptavinur sent umsóknina með pósti og látið ávísun eða greiðslukortsupplýsingar fylgja með.  Umsókn er ekki tekin til afgreiðslu fyrr en greitt hefur verið fyrir kortið.


Tölvukerfið athugar hæfni umsækjandans og skráir umsóknina. Ef til vill verður starfsmaður að ræða umsóknina við viðskiptavininn eða hafna henni.


Sé umsækjandi metinn hæfur fer kortapöntun til framleiðanda kortanna í Svíþjóð.  Kortin eru framleidd og send Umferðarstofu, sem afhendir svo viðskiptavini kortið með þeim hætti sem valinn var á umsóknareyðublaðinu.


Smellið á viðeigandi síður í valblaði hér til vinstri til að fá nánari skýringar á umsóknarferlinu.



Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++