Á verkstæðinu fer fram eftirlit með virkni ökuritans.
Maður á verkstæðinu, sem heitir Unnar, er með verkstæðiskort sem hann setur í ökuritann á sama stað og ökumannskortið er venjulega. Síðan slær hann inn sérstakan aðgangslykil sinn (PIN-númer).
Unnar á að athuga hvort ökuritinn starfi eins og honum er ætlað og lagfæra hann ef þess er þörf. Hann andvarpar þegar honum verður hugsað til hinna erfiðu prófa sem hann varð að taka til að fá viðurkenningu til þessa starfs og verður hugsað til þess hvað hann og samstarfsmenn hans urðu að leggja mikið á sig til að mæta þeim kröfum sem gerðar voru.