Upplýsingatorg
Þegar Róbert er búinn að aka dágóða stund og er nýkominn yfir Víkurskarð, sér hann að Vegagerðarbifreið stendur við útskot á veginum. Hann er stöðvaður af eftirlitsmanni sem vill athuga aksturskortið og ökuritann.
Eftirlitsmaðurinn setur eigið eftirlitskort í þar til gerðan lesara í ökuritaranum, en ökukort Róberts er áfram í hinum lesaranum. Svo vill til þennan dag að eftirlitsmaðurinn er ekki með eigin tölvu með sér þannig að hann skrifar út strimil þar sem fram kemur lengd ökuferðar og tímasetning, auk ýmissa smámynda sem tákna hvíldartíma, ökutíma, lestunartíma og aðrar upplýsingar sem kunna að finnast í ökuritanum.



