Upplýsingatorg
Einn sólríkan morgun kemur Róbert inn á skrifstofuna og fær akstursáætlun. Hann hefur verið ökumaður í mörg ár og líkar starfið vel. Hann ræðir um nokkur atriði er varða aksturinn við Sollu, sem annast áætlanagerðina. Síðan fer hann út í bíl.
Hann hefur með sér nýja ökuritakortið og þegar hann sest inn í bílinn setur hann kortið í ökuritann. Þegar skjárinn á ökuritanum sýnir að ökuritinn hafi samþykkt kortið, slær hann inn að hann sé nú á Íslandi og að þetta sé í upphafi vinnudags. Hann slær einnig inn upplýsingar um að hann hafi verið í vinnu inni á skrifstofunni. Því næst ekur hann af stað.
Þegar hann lestar bílinn á Siglufirði, lætur hann kortið vera áfram í ökuritanum. Þá skráist sá tími einnig sem vinnutími.
Eftir að hafa lestað ekur hann af um göngin og heldur áleiðis til Neskaupsstaðar.
Eftir tvær klukkustundir stoppar hann við veitingahús á Akureyri. Hann lætur kortið vera áfram í ökuritanum, en stillir hann á "hvíld".
Síðan fer hann inn og fær sér kaffi.
Eftir hvíldina ekur hann aftur af stað og skiptir ökuritinn þá sjálfkrafa yfir í "akstur".



