Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Upplýsingatorg

Klukkumynd

Reglur innan EES um aksturs- og hvíldartíma segja til um hve lengi starfandi ökumaður má vera við akstur og hve lengi hann skal hvílast milli aksturs- og vinnulota. Ökuritinn gerir yfirvöldum og atvinnurekendum það mögulegt að gæta þess að ökumaðurinn fylgi settum reglum.

Þeir hliðrænu ökuritar sem tíðkast hafa hingað til notast við pappaskífu sem ritað er á og auðvelt er að falsa. Þetta hefur í för með sér að hægt er að misnota starfskrafta ökumanna með því að svindla á öku- og hvíldarreglum. Þar með skekkist samkeppnisgrunnur flutningafyrirtækja auk þess sem umferðarörygginu er misboðið.

Rafræni ökuritinn er hannaður til að einfalda og hagræða. Hann er auðveldur í notkun og erfiðara eða útilokað er að misnota hann. Eftirlitið verður auk þess bæði fljótlegra og hagkvæmara.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++