Upplýsingatorg
Tilgangur þess að taka í notkun rafræna ökurita er að einfalda mælingu á aksturs- og hvíldartíma og hindra misnotkun. Þetta eykur umferðaröryggi, bætir vinnuaðstæður ökumanna og gerir samkeppni flutningafyrirtækja virkari og sanngjarnari.
Þau ökutæki, sem reglur EES um aksturs- og hvíldartíma ná til skulu hafa fasta ökurita. Ökuritinn skráir upplýsingar um aksturinn, svo sem hraða og aksturs- og hvíldartíma. Með aðstoð ökuritans sjá eftirlitsmenn Vegagerðarinnar til þess að farið sé að settum reglum.
Kerfi þetta var innleitt á Íslandi árið 2006 og voru fyrstu kortin framleidd í september það ár. Öll ríki Evrópusambandsins hafa tekið kerfið upp og áætlað er að árið 2010 verði þetta kerfi einnig komið á í öllum löndum sem hafa undirritað AETR-samkomulagið, þ.e. þau lönd sem hafa skuldbundið sig til að hlíta reglum um aksturs- og hvíldartíma í öllum alþjóðlegum flutningum.
Nýja kerfið dregur úr vandamálum vegna svindls sem var viðvarandi í gamla pappaskífukerfinu. Ekki er gerð krafa um að skipta um ökurita í þeim bílum sem þegar eru með skífuökurita og því munum við búa við tvöfalt kerfi í þó nokkur ár, þ.e. þar til búið er að skipta út öllum flotanum.
Yfirlit yfir þau lönd sem reglugerð um rafræna ökurita nær til:
| EB | EFTA | AETR |
| Austurríki | Ísland | Albanía |
| Belgía | Licthenstein | Andorra |
| Bretland | Noregur | Armenía |
| Búlgaría | Aserbaídsjan | |
| Danmörk | Bosnía-Hersegóvína | |
| Eistland | Hvíta Rússland | |
| Finnland | Kasakstan | |
| Frakkland | Króatía | |
| Grikkland | Makedónía | |
| Holland | Moldavía | |
| Írland | Mónakó | |
| Ítalía | Rússland | |
| Kýpur | San Marínó | |
| Lettland | Serbía | |
| Litháen | Svartfjallaland | |
| Lúxemborg | Sviss | |
| Malta | Túrkmenistan | |
| Portúgal | Tyrkland | |
| Pólland | Úkraína | |
| Rúmenía | Úsbekistan | |
| Slóvakía | ||
| Slóvenía | ||
| Spánn | ||
| Svíþjóð | ||
| Tékkland | ||
| Ungverjaland | ||
| Þýskaland |



