Ökutækjaskráningar
Algengar spurningarHvaða gögnum þarf að framvísa við umsókn um skráningu ökutækja ?
[Ef notað ökutæki er flutt inn frá Evrópska efnahagssvæðinu(EES), USA eða Kanada er almennt nægilegt að framvísa farmbréfi og erlendu skráningarskírteini þar sem fram koma allar nauðsynlegar upplýsingar um ökutækið. Fyrir ný ökutæki og notuð ökutæki frá öðrum löndum en talin eru upp hér að ofan verður að framvísa ýtarlegum upplýsingum um gerð og búnað ökutækisins, sbr. viðkomandi upplýsingablað.]Þurfa framlögð skráningargögn að vera í frumriti eða nægja afrit ?
[Erlent skráningarskírteini og upprunavottorð þurfa að vera í frumriti, hvort sem um ný eða notuð ökutæki er að ræða. Sé ekki framvísað frumriti skráningargagna, t.d. skráningarskírteinis, er skráningu hafnað. Farmbréf má vera í afriti.]Er unnt að nota framlögð gögn með einu ökutæki vegna skráningar á öðru ökutæki, þ.e. er heimilt að vísa í önnur gögn?
Almennt varða framlögð gögn aðeins eitt einstakt ökutæki og í þeim tilvikum er ekki unnt að nota gögnin fyrir annað ökutæki en gögnin varða. Ef gögn eru almenns eðlis og geta náð yfir fleiri ökutæki er heimilt að nota þau fyrir fleiri ökutæki, en ef ekki er um að ræða sama innflytjanda þarf samþykki þess er upphaflega lagði fram gögnin.Innflutningur ökutækja til Íslands með Norrænu eða öðrum ferjum
Ekki er hægt að leysa ökutæki úr tolli nema það hafi áður verið forskráð hjá Umferðarstofu. Til að hægt sé að forskrá ökutæki þarf að skila inn umsókn um forskráningu og umsókninni þurfa að fylgja ákveðin gögn. Þessi gögn, ásamt umsókninni, þurfa að berast Umferðarstofu áður en ökutækið kemur til landsins og þarf því að senda þau (t.d. með DHL) áður en ökutækið fer í skip. Mikilvægt er að allir pappírar séu sendir saman í einum pakka til að tryggja sem skjótasta skráningu. Þau gögn sem alltaf þurfa að fylgja umsókn um forskráningu eru:
- Erlent skráningarskírteini í frumriti (fax eða ljósrit eru ekki tekin gild)
- Staðfesting á flutningi frá flutningsaðila(Norrænu eða öðrum viðeigandi aðila)
Hvað kostar að nýskrá ökutæki?
Fyrir nýskráninguna sjálfa ber að greiða kr. 5.060, auk umferðaröryggisgjalds kr. 400. Kostnaður við skráningarskoðun bifreiða er á bilinu 5 - 9 þúsund, eftir skoðunarstað og stærð bifreiðar. Fyrir bifhjól og eftirvagna er gjaldið þó lægra. Að auki þarf að greiða bifreiðagjald og þungaskatt (ef við á) fyrir það sem eftir stendur af gjaldtímabili. Þá þarf vörugjald samkvæmt ákvörðun tollstjóra að vera greitt.Hvaða reglur gilda um skráningu á aldri ökutækja ?
[Almennt er fyrsti skráningardagur látinn gilda sem aldursviðmiðun ökutækja. Þegar ökutæki er skráð nýtt hér á landi er það nýskráningardagur hér á landi sem gildir sem fyrsti skráningardagur. Ef ökutæki er skráð notað hér á landi eru upplýsingar um fyrsta skráningardag ökutækis sóttar í erlent skráningarskírteini. Ef ekki eru til upplýsingar um fyrsta skráningardag notaðra ökutækja eru skráðar upplýsingar um framleiðsludag ökutækisins.]Eftir hvaða reglum er farið þegar árgerð ökutækja er skráð?
Ef ökutæki hefur verið nýskráð hér á landi fyrir 1. janúar 1999 er heimilt að skrá upplýsingar um árgerð. Þegar það er gert er farið eftir eftirfarandi reglum:1. Ef framleiðandi ökutækis ákveður árgerð þess og merkir í verksmiðjunúmer skal við skráningu ökutækisins farið eftir þeim upplýsingum.
2. Ef árgerð ökutækis kemur ekki fram í verksmiðjunúmeri skal skrá árgerð ökutækisins eftir upplýsingum frá framleiðanda þess, en því aðeins af árgerð komandi árs að það sé framleitt á síðari helmingi ársins.
3. Hafi ökutæki áður verið skráð opinberri skráningu erlendis og tilgreind er árgerð þess skal sú árgerð skráð.
Í öllum amerískum bifreiðum og sumum japönskum (Subaru, Izusu) og evrópskum (Volvo, Saab, Opel, Lada, Skoda) segir tíundi stafur til um árgerð bifreiðarinnar:
Þegar árgerð er skráð skv. verksmiðjunúmeri er miðað við 10. staf verksmiðjunúmers en þeir geta verið þessir:
| A = 1980 | E = 1984 | J = 1988 | N = 1992 | T = 1996 | Y = 2000 | 4 = 2004 |
| B = 1981 | F = 1985 | K = 1989 | P = 1993 | V = 1997 | 1 = 2001 | 5 = 2005 |
| C = 1982 | G = 1986 | L = 1990 | R = 1994 | W = 1998 | 2 = 2002 | 6 = 2006 |
| D = 1983 | H = 1987 | M = 1991 | S = 1995 | X = 1999 | 3 = 2003 | 7 = 2007 |
Eigendaskráning
Hvað þarf maður að vera gamall til að kaupa og selja ökutæki ?
Samkvæmt lögræðislögum þarf aðili að vera orðinn 18 ára til að mega kaupa og selja ökutæki. Ef aðili er yngri þarf samþykki sýslumanns (yfirlögráðanda) fyrir kaupum og sölu.Þarf leyfi frá sýslumanni ef meðeigandi er yngri en 18 ára ?
Um meðeiganda gilda sömu reglur og um aðaleiganda og því þarf samþykki sýslumanns ef meðeigandi er ekki orðinn 18 ára.Hvaða þýðingu hefur skráning meðeiganda og umráðamanns?
Þegar tveir aðilar eru skráðir eigendur að ökutæki er annar aðilinn skráður eigandi en hinn aðilinn skráður meðeigandi. Um meðeiganda gilda sömu reglur og um aðaleiganda þar sem allir eigendur teljast jafnir að lögum, nema annað komi sérstaklega fram. Eigendahlutfall er ekki skráð eftir prósentuhlutfalli heldur eftir röð. Aðilinn sem skráður er fyrst er sá sem fær tilkynningar og greiðsluseðla vegna ökutækisins, s.s. vegna bifreiðagjalda og trygginga. Meðeigandinn fær ekki slíkar tilkynningar en er þó jafn ábyrgur fyrir gjöldum.
Umráðamaður er sá aðili sem hefur umráð yfir ökutækinu en er ekki eigandi þess. Í flestum tilfellum er umráðamaður aðili sem gert hefur samning við fjármögnunarfyrirtæki og er þá umráðamaður ökutækisins í ákveðinn fjölda ára. Einnig er algengt að vinnuveitandi sé eigandi ökutækis og starfsmaður sé umráðamaður. Bifreiðagjöld leggjast alltaf á eiganda ökutækis en ekki á umráðamann. Ef fjármögnunarfyrirtæki er eigandi þá fær umráðamaður þó greiðsluseðil með bifreiðagjöldum, og eftir atvikum greiðsluseðil vegna trygginga, þrátt fyrir að álagningin leggist á fjármögnunarfyrirtækið. Er þetta vegna samnings umráðamanns og fjármögnunarfyrirtækis.
Hvað kostar skráning eigendaskipta ?
Gjald vegna eigendaskipta er kr. 2.130 auk umferðaröryggisgjalds sem er kr. 400. Sjá nánar gjaldskrá Umferðarstofu.
Ef eigendaskiptatilkynning er send í pósti þá er hægt að greiða skráningargjaldið inn á reikning Umferðarstofu sem er, 0515-26-005802, kt. 660802-3120. Athugið að senda kvittun með eigendaskiptunum.
Skipta undirritanir á tilkynningu miklu máli ?
[Eigendaskipti eru ekki skráð nema tilkynning sé undirrituð af öllum aðilum og undirritanir vottaðar af minnst einum votti.] Ef undirritað er fyrir hönd aðila verður að framvísa umboði.Þarf vott á tilkynningu ef eigendaskiptin eru innan fjölskyldunnar ?
Það þarf alltaf vott að undirritun aðila á eigendaskiptatilkynningu. Vottur staðfestir að réttir aðilar hafi undirritað tilkynninguna.Skráningarmerki
Hvað þarf að gera til að taka út skráningarmerki sem voru afklippt af ökutæki?
Meginreglan er sú að það þarf að bæta úr þeim annmarka sem varð til þess að merkin voru afklippt. Ef afklippt var vegna skoðunar þarf að færa ökutæki til skoðunar áður en merkin eru afhent að nýju.Hvað þarf að gera til að taka út skráningarmerki sem hafa verð lögð inn til geymslu af eiganda ?
Meginreglan er sú að leggja þarf fram staðfestingu á tryggingu og greiða áhvílandi opinber gjöld.Hvað kostar að fá einkamerki ?
[Það kostar 30.700 kr. að fá einkamerki á bifreið en 28.100 kr. á bifhjól. 25.000 kr. eru vegna réttindagjalds einkamerkja, en rétturinn gildir í átta ár og þarfnast þá endurnýjunar. Sérhvert skráningarmerki kostar 2.600 kr. og svo kostar 500 kr. að skrá einkamerki á ökutæki.]Geta þeir sem kaupa bifreiðar með kaupleigu fengið einkamerki ?
Já. Reglum um einkamerki hefur verið breytt þannig að nú er heimilt að skrá umráðamann ökutækis sem rétthafa að einkamerki, en þeir sem fjármagna ökutæki með rekstrarleigu / einkaleigu eru almennt skráðir sem umráðamenn ökutækja.Hvað er lengi verið að framleiða skráningarmerki ?
Framleiðsla skráningarmerkja tekur 3 daga, þ.e. merkin eru komin úr framleiðslu á þriðja degi frá pöntunardegi. Það er hins vegar hægt að flýta framleiðslu skráningarmerka um einn dag, en fyrir það ber að greiða sérstakt flýtigjald. [Sé flýtigjald greitt við forskráningu eru skráningarmerkin tekin af lager og eru því tilbúin um leið og fastanúmeri er úthlutað.]Hvar finn ég skráningarmerkin sem ég lagði inn / voru afklippt af lögreglu ?
Ef merkin hafa verið lögð inn eru þau geymd á þeim stað þar sem þau voru lögð inn. Ef merkin voru afklippt af lögreglu getur verið um fleiri en einn stað að ræða. Upplýsingar um staðsetningu merkjanna fást þó alltaf hjá Umferðarstofu í síma 580-2000.Endurgreiðsla vörugjalds og virðisaukaskatts af vélknúnum ökutækjum sem flutt eru úr landi
Sett hafa verið lög sem veita tollstjóra heimild til þess að endurgreiða vörugjald og virðisaukaskatt af vélknúnum ökutækjum, meðal annars bifreiðum, bifhjólum, vélsleðum og dráttarvélum, sem afskráð eru og flutt úr landi.
Nánari upplýsingar má nálgast á vef Tollstjóraembættisins.
Hvað þarf ég að greiða í bifreiðagjöld?
Á vef Ríkisskattstjóra er reiknivél til að reikna út bifreiðagjöld. Þar er einnig hægt að reikna út hver skipting bifreiðagjalds er fyrir tímabil miðað við ákveðna skiptidagsetningu.



