Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Hraðakstur

hradakstur2 copy.jpg- Hvert er umfang hraðaksturs hér á landi?

Samkvæmt upplýsingum sem umferðargreinar Vegagerðarinnar annars vegar og Reykjavíkurborgar hins vegar veita er ljóst að margir ökumenn aka of hratt miðað við aðstæður og leyfðan hámarkshraða. Umferðargreinar Vegagerðarinnar leiða til dæmis í ljós að á árunum 1990-2003 jókst meðalhraði á þjóðvegum landsins þó að enn fremur séu vísbendingar um að aðeins hafi dregið úr meðalhraðanum síðustu tvö árin. Einnig má benda á að, samkvæmt tölum frá lögreglunni, þá voru hraðakstursbrot árið 2006 rúm 40% af öllum umferðarlagabrotum í málaskrá lögreglu og um leið langstærsti einstaki umferðarlagabrotaflokkurinn. Hefur þessum brotum fjölgað í málaskrá lögreglu á undanförnum árum og má meðal annars rekja það til aukinnar notkunar myndavéla við umferðareftirlit.


- Hverjir stunda hraðakstur?

Ökumenn á öllum aldri stunda hraðakstur en ofsaakstur á aðallega við um ökumenn á aldrinum 17-24 ára.

- Hverjar eru afleiðingar hraðaksturs?

Það er alveg ljóst að eftir því sem hraðinn er meiri þeim mun alvarlegri verða afleiðingarnar ef til áreksturs eða útafaksturs kemur. Þá eiga ökumenn enn fremur erfiðara með að bregðast við á öruggan hátt þegar eitthvað óvænt kemur upp á í umferðinni. Hemlunarvegalengd bílsins verður lengri og meiri hætta á því að ökumaður missi stjórn á ökutækinu. Á þessari síðu má sjá áhrif ökuhraða á hemlunarvegalengd.

Fræðslumyndband - Hraði

You must install the Flash Player to watch this movie online.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++