Umferðaröryggi
Ölvunarakstur
- Hvaða reglur gilda um akstur undir áhrifum áfengis, lyfja eða ávana- og fíkniefna?
Samkvæmt umferðarlögum skal ökumaður vera líkamlega og andlega fær um að stjórna því ökutæki sem hann fer með. Enginn má stjórna eða reyna að stjórna ökutæki ef hann vegna veikinda, hrörnunar, ofreynslu, svefnleysis, neyslu áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna eða annarra orsaka er þannig á sig kominn að hann er ekki fær um að stjórna ökutækinu örugglega. Í umferðarlögum er kveðið á um að ökumaður megi ekki neyta áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna við stjórn vélknúins ökutækis. Ennfremur að enginn megi stjórna eða reyna að stjórna vélknunu ökutæki ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem bönnuð eru.
- Hvað þarf vínandamagn í blóði að vera mikið til að ökumaður teljist ekki geta stjórnað ökutæki örugglega?
Ef vínandamagn í blóði ökumanns nemur 0,50 prómillum, en er minna en 1,2 prómill, eða vínandamagn í lofti sem hann andar frá sér nemur 0,25 milligrömmum í lítra lofts en er minna en 0,60 milligrömm eða ökumaður er undir áhrifum áfengis þótt vínandamagn í blóði hans eða útöndun sé minna telst hann ekki getað stjórnað ökutæki örugglega. Ef vínandamagn í blóði ökumanns nemur 1,2 prómillum eða meira eða vínandamagn í lofti sem hann andar frá sér nemur 0,6 milligrömmum í lítra lofts eða meira telst hann óhæfur til að stjórna ökutæki.
- Hvað þarf mikið magn ávana- og fíkniefna að mælast til að ökumaður teljist ekki mega stjórna vélknúnu ökutæki?
Mælist ávana- og fíkniefni í blóði eða þvagi ökumanns telst hann vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega.

- Hve langan tíma tekur fyrir vínanda að hverfa úr blóðinu?
Ýmsir þættir hafa áhrif á hversu lengi vínandi er að hverfa úr blóðinu svo sem magn þess áfengis sem innbyrt er og líkamsbygging einstaklingsins. Þess vegna er ekki hægt að setja algild tímamörk. Lifrin minnkar vínandann í blóðinu um 0,15 prómill á klukkustund og meðan á því stendur er best að hvílast vel. Ekki er hægt að flýta fyrir niðurbroti vínanda í blóði með neinum hætti en margir virðast halda að svo sé. Kaffidrykkja, köld sturta, líkamsæfingar eða annað slíkt leiða ekki til þess að það renni hraðar af fólki. Enn fremur er bent á að þeir sem þjást af eftirköstum drykkju svo sem höfuðverki, sleni og þreytu eru ekki vel upplagðir til aksturs.
Með því að smella hér er hægt að komast inn á reiknivél á heimasíðunni doktor.is þar sem reiknað er út hve langan tíma tekur fyrir áfengi að brotna niður í líkamanum.
- Hvaða viðurlög liggja við ölvunarakstri?
Viðurlög við ölvunarakstri fara eftir vínandamagni í blóði. Sé vínandamagnið til dæmis á bilinu 0,5 prómill til 0,6 prómill fær viðkomandi 2 mánaða sviptingu ökuréttinda og 70.000 króna sekt. Eftir því sem vínandamagnið er meira í blóðinu hækka sektirnar og ökuleyfissviptingarnar verða lengri. Sé vínandamagnið á bilinu 0,91 prómill til 1,10 prómill fær viðkomandi 8 mánaða sviptingu og 100.000 króna sekt og sé vínandamagnið á bilinu 1,20-1,50 prómill er sviptingin 12 mánuðir og sektin 140.000 krónur. Alltaf þarf að fara í ökupróf að nýju þegar um sviptingu ökuréttinda er að ræða . Athugið að þessi viðurlög miðast við að um fyrsta brot sé að ræða. Nánari upplýsingar um viðurlög við ölvunarakstri má sjá í reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum (45 grein).
- Hvert er umfang ölvunaraksturs hér á landi?
Brot vegna ölvunar við akstur voru 1.946 árið 2005. Samanborið við meðaltal áranna 2000 - 2004 er um rúmlega 2% fækkun að ræða en meðtalið var 1.992. Akstur undir áhrifum áfengis eða lyfja er engu að síður enn þá ein af þremur algengustu orsökum banaslysa í umferðinni ásamt hraðakstri og vannotkun á öryggisbeltum.



