Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Merkingar við framkvæmdasvæði

Vinnusvæðamerkingar copy 2.jpg

 

- Hvaða reglur gilda um merkingar verktaka við framkvæmdasvæði?

Verktökum ber að merkja ítarlega framkvæmdasvæði á götum, vegum og gangstígum fyrir almenna umferð og vara vegfarendur við þeim með góðum fyrirvara ef ástæða þykir til. Um slíkar merkingar eru til ítarlegar leiðbeiningar sem hægt er að kynna sér á vefsvæði Vegagerðarinnar. Þær upplýsingar sem þar er að finna byggjast á bæklingnum Merkingar vinnusvæða sem hægt er að nálgast hjá aðalstöðvum og svæðisstöðvum Vegagerðarinnar, Gatnamálastjóranum í Reykjavík og lögreglunni.

- Hvert er best að beina ábendingum um ófullnægjandi merkingar?

Ábendingum um ófullnægjandi merkingar við framkvæmdasvæði er best að beina til þess sem hefur yfirumsjón með verkinu og ber ábyrgð á því. Það getur verið Vegagerðin, sveitarfélög, fjarskiptafyrirtæki eða orkuveitur svo nokkuð sé nefnt.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++