Flokkar á nýju ökuskírteini | Ökutæki | Athugasemdir |
M | Létt bifhjól | öðru nafni skellinöðrur. Hámarks-stærð er 50 kúbik og hraði 45 km. (15 ára). |
T | Dráttarvél | með öllum tilheyrandi eftirvögnum og tengitækjum. (16 ára) |
A | Bifhjól | Í gildi eru tvö aflstig bifhjóla, neðri flokkur nær upp í 25 kW (34hestöfl) og efri flokkur yfir 25 kW. Til að fá réttindi á aflmeiri hjólin þarf að vera orðin 21 árs þegar próf er tekið eða hafa tveggja ára reynslu á hjól í aflminni flokknum. (17 ára) |
B | Fólksbíll (einnig létt bifhjól, dráttarvél, torfærutæki s.s. vélsleði og akstur vinnuvéla í umferð) | Bifreið fyrir mest 8 farþega sem er að hámarki 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd (með fullfermi og öllum leyfðum farþegum). Eftirvagn/tengitæki má ekki vera þyngri en 750 kg. (17 ára) |
BE | Eftirvagnar fyrir fólksbíl | þyngri eftirvagnar og tengitæki en 750 kg. (18 ára) |
C | Vörubíll | bifreið þyngri en 3.500 kg. Þó eru í gildi takmarkanir á þyngd fyrir ökumenn sem eru yngri en 21 í lengri ferðum. (18 ára) 74 - takmarkar þyngd vörubílsins við mest 7.500 kg |
CE | Eftirvagnar fyrir vörubíla | þyngri en 750 kg. (18 ára) 76 - takmarkar eftirvagninn við C:74 vörubíl þar sem heildarþyngd bíls og eftirvagns má ekki fara yfir 12.000 kg. |
D | Hópbifreið eða rúta | Hópbifreið fyrir fleiri en 8 farþega. Þessum réttindum fylgir í flestum tilfellum réttindi til farþegaflutninga í atvinnuskyni. (21 árs) 75 - takmarkar fjölda við mest 16 farþega |
DE | Eftirvagnar fyrir hópbifreið | þyngri en 750 kg. (21 árs) 77 - takmarkar eftirvagninn við D:75 hópbifreið þar sem heildarþyngd bíls og eftirvagns má ekki fara yfir 12.000 kg. |