Umferðaröryggi
Gátlisti fyrir ferðalagið

Ertu á leið í ferðalag? Gakktu úr skugga um að allt sé í lagi áður en þú leggur af stað. Að ýmsu ber að hyggja þegar haldið er í ferðalag. Gott er að yfirfara bílinn og útbúnað hans þannig að ferðin verði í senn örugg og ánægjuleg. Enn fremur þarf að hafa í huga þær fjölmörgu hættur sem bíða manns á vegum úti að ekki sé talað um þau mannlegu mistök sem geta haft hörmulegar afleiðingar í för með sér. Hér að neðan er að finna gátlista sem gott er að renna yfir fyrir ferðalagið. Lesendum til hægðarauka er gátlistanum skipt í fimm kafla eftir efni.



