Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Grunnskólar

Grunnskólafræðsla

Frá því að grunnskólinn fluttist til sveitarfélaga hefur umferðarfræðsla í grunnskólum landsins ekki verið í föstum skorðum. Í umferðaröryggisáætlun er fyrirhugað að efla þá fræðslu til muna með því að gera hana að föstum lið í námskrá leikskóla og grunnskóla og jafnvel að koma á samþættingu umferðarfræðslu inn í framhaldskóla.

Markmið fræðslunnar er að:

  • koma umferðarfræðslu inn í skólanámskrár allra grunnskóla
  • halda námskeið í umferðarfræðslu fyrir grunnskólakennara í grunnskólum landsins þeim að kostnaðarlausu
  • efla námsefnisgerð í umferðarfræðslu og stuðla að þróun náms- og fræðsluvefs um umferðarmál.

Gerður var sérstakur samningur á milli Umferðarstofu og Grundaskóla á Akranesi haustið 2005 um eflingu umferðarfræðslu á grunnskólastigi. Grundaskóli er móðurskóli í umferðarfræðslu og þannig öðrum grunnskólum á Íslandi til fyrirmyndar og ráðgjafar á þessu sviði. Á vefnum umferd.is er svo hægt að finna ýmsan fróðleik og leiki sem tengjast umferðarfræðslu og er vefurinn hugsaður fyrir nemendur, kennara og foreldra.  Þá er hægt að nálgast nýja handbók í umferðarfræðslu hér.

Skólabörnin í umferðinni

Á leið í skólann - nokkur góð ráð
Börn sem eru að hefja skólagöngu hafa ekki öðlast nægan þroska til að takast á við þau vandamál sem upp geta komið í umferðinni.  Þess vegna er mikilvægt að foreldrar eða einhverjir aðrir fullorðnir gefi sér tíma til að fylgja barninu í skólann, kenna því að fara eftir umferðarreglunum og benda á þær hættur sem fyrir hendi eru.
Lesa meira...

Hvað gerir börnum erfitt fyrir í umferðinni?

Fullorðnu fólki hættir oft til að líta á börn sem smávaxnar mannverur með nokkurn veginn sömu hæfni til að takast á við hættulegar aðstæður.  En það er öðru nær.
Lesa meira...

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++