Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

laugardagur 4. febrúar 2012 kl. 00:00

Stöðvaðir við akstur undir áhrifum

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins voru tæplega 70 ökumenn stöðvaðir í miðborginni á fimmtudagskvöldinu og um nóttina í umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra, karl á fimmtugsaldri, reyndist ölvaður við stýrið. Á sama tímabili voru tveir aðrir karlar, annar á þrítugsaldri en hinn á fertugsaldri, teknir við akstur annars staðar í borginni en þeir voru báðir undir áhrifum fíkniefna. Þá var 18 ára pilti gert að hætta akstri í Árbæ síðdegis í gær en sá hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.

föstudagur 3. febrúar 2012 kl. 16:49

Spáð miklum hviðum og slæmu veðri

Það er spáð versnandi veðri á fjallvegum um vestan- og norðvestanvert landið seint í kvöld, hríðarveður og slæmt skyggni verður fram á nóttina. Búast má við hviðum allt að 30 ¿ 40 m/s á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli frá því kl. 21 til 22 í kvöld og fram á nótt. Eins um svipað leyti undir Eyjafjöllum og litlu síðar í Öræfasveit.

föstudagur 3. febrúar 2012 kl. 15:11

Þungatakmarkanir á vegum

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hafa verið settar 10 tonna þungatakmarkanir á nokkra vegi á Austurlandi og eins á Suðausturlandi alveg vestur að Hvolsvelli.

föstudagur 3. febrúar 2012 kl. 07:11

Virða skal rétt gangandi á gulu blikkandi ljósi

Umferðarstofu hafa borist ábendingar frá gangandi vegfarendum um að einstaka ökumenn virði ekki þann rétt sem gangandi hafa þegar gengið er á gulu blikkandi ljósi yfir ljósastýrða gangbraut. Þegar rautt ljós sem skín á bílaumferð breytist í gult má ekki aka af stað fyrr en tryggt er að gangandi séu komnir yfir akbrautina. Svo virðist sem ökumenn virði þetta ekki sem skyldi.

föstudagur 3. febrúar 2012 kl. 07:09

Notum þríhyrning og viðvörunarljós

Þegar bíll bilar í umferðinni þarf í öllum tilfellum að gera ráðstafanir til að aðrir bílstjórar sjái bílinn. Nauðsynlegt er að settur sé upp viðvörunarþríhyrning aftan við bílinn í það mikilli fjarlægð að aðrir ökumenn sjái tímalega að hætta sé framundan. Það má hafa það sem viðmið að þar sem hámarkshraði er 60 skal setja þríhyrninginn í 60 metra fjarlægð. Einnig skal kveikt á viðvörunarljósum eða svonefndum hazardljósum.

föstudagur 3. febrúar 2012 kl. 07:06

Pössum hraðann

Eftir asahláku síðustu daga sér nú niður á malbik á flestum götum höfuðborgarsvæðisins. Umferðarstofa minnir ökumenn á að þó svo að færðin sé mun betri núna en undanfarnar vikur eru enn í gildi reglur um hámarkshraða. Sérstaklega skal minnt á að halda hraðanum í hófi í íbúðarhverfum þar sem 30km hámarkshraði er í gildi.

föstudagur 3. febrúar 2012 kl. 07:00

Umferðarslys í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur komið að þremur umferðarslysum undanfarna daga þar sem slys urðu á fólki. Eitt slysið er rakið til þess að biðskylda var ekki virt og ökuhraði ekki í samræmi við aðstæður. Í öðru slysi beinist rannsókn lögreglu bæði að of hröðum akstri og akstri gegn rauðu ljósi. Í því þriðja var ekið á gangandi vegfaranda. Á þeim stað eru ekki umferðarmerki og eins er lýsingu ábótavant og hefur borgaryfirvöldum verið send ábending vegna þessa. Meiðsli vegfarandans voru ekki talin alvarleg. Það er mat lögreglu að hægt sé að koma í veg fyrir umferðarslys leggist allir á eitt um að aka gætilega og sýna tillitssemi í hvívetna.

föstudagur 3. febrúar 2012 kl. 06:25

Varað við hreindýrum

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++