Upplýsingatorg
Efni ökutækjaskrár
Verksmiðjunúmer: Hvert ökutæki hefur verksmiðjunúmer sem er áletrað á ökutækið (misjafn staður eftir gerð ökutækis). Verksmiðjunúmerið inniheldur ýmsar upplýsingar um ökutækið. Í öllum amerískum bifreiðum og sumum japönskum (Subaru, Izusu) og evrópskum (Volvo, Saab, Opel, Lada, Skoda) segir tíundi stafurinn t.d. til um árgerð bifreiðarinnar:|
A = 1980 |
E = 1984 |
J = 1988 |
N = 1992 |
T = 1996 |
Y = 2000 |
|
B = 1981 |
F = 1985 |
K = 1989 |
P = 1993 |
V = 1997 |
1 = 2001 |
|
C = 1982 |
G = 1986 |
L = 1990 |
R = 1994 |
W = 1998 |
2=2002 |
|
D = 1983 |
H = 1987 |
M = 1991 |
S = 1995 |
X = 1999 |
3=2003 |
Skráningarnúmer: Skráningarnúmer ökutækis er sú áletrun sem er á skráningarmerki. Skráningarnúmerið er oftast það sama og fastanúmer, en getur þó einnig verið sérvalin áletrun (einkamerki) eða eldri áletrun (gömul merki).
Fastanúmer: Hvert ökutæki ber eitt fastanúmer í ökutækjaskrá sem aldrei breytist.
Tegund: Tegund ökutækis er ákveðin af framleiðanda (t.d. Ford og Toyota).
Undirtegund: Undirtegund er ákveðin af framleiðanda (t.d. Fiesta og Corolla).
Ökut.flokkur: Ökutækjaflokkur (fólksbifreið, sendibifreið, vörubifreið, hópbifreið, þungt bifhjól, létt bifhjól, eftirvagn, tengitæki, beltabifreið, dráttarvél, dráttarbifreið, festivagn, hengivagn, hjólhýsi, tjaldvagn, torfæruhjól, vélsleði,).
Litur: Litur ökutækis.
Notkunarflokkur: Notkunarflokkur ökutækis (almenn notkun, bílaleiga/útleiga, kennsluakstur, leiguakstur, vsk-ökutæki, sendiráðsökutæki, lögregluökutæki, námu-utanvegabifreið, rallakstur, sjúkraflutningar, skólabifreið, ökutæki varnarliðsmanns, vsk-rallakstur).
Innflutningsástand: Innflutningsástand ökutækisins (nýtt, notað, búslóð, innlent, nýtt gvk). Nýtt gvk þýðir að ökutæki er innflutt nýtt gerðarviðurkennt. Búslóð merkir að ökutæki hafi verið flutt inn sem hluti af búslóð eiganda.
Kennitala: Kennitala eiganda (umráðamanns ef hann er skráður).
Eigandi / umráðamaður: Nafn eiganda (umráðamanns ef hann er skráður).
Heimili: Heimilisfang eiganda (umráðamanns).
Póstfang: Póstfang eiganda (umráðamanns).
Trygging: Nafn tryggingafélags ef trygging er í gildi (annars stendur ótryggt ökutæki).
Opinb.gj.: Áhvílandi opinber gjöld (bifreiðagjöld og þungaskattur).
Veðbönd: Upplýsingar um það hvort veðbönd eru áhvílandi (já / nei). Nánari upplýsingar um áhvílandi veðbönd fást hjá sýslumönnum á hverjum stað.
Farþ./hjá ökum.: Fjöldi leyfilegra farþega í heild / fjöldi farþega við hlið ökumanns.
Skráningarflokkur: Tegund skráningarmerkja sem ökutækið ber (Almenn merki, Einkamerki, Einkamerki léttbifhjóla, Gamlar plötur, Gamlar torfæruplötur, Fornmerki, Forsetaembætti, Léttbifhjólamerki, Tollmerki, Sendiráðsmerki, Torfærumerki, Utanvegamerki, Reynslumerki, Skammtímaskráningarmerki, VLM-merki, VSK-merki.
Plötustaða: Staða skráningarmerkja (Á ökutæki, Í geymslu, Eyðilögð)
Geymslustaður: Ef skráningarmerki eru í geymslu er hér tilgreindur geymslustaður (Umferðarstofa eða skoðunarstofa).
Tegund skoðunar: Tegund síðustu skoðunar sem framkvæmd var á ökutækinu (aðalskoðun, endurskoðun, breytingaskoðun, skráningarskoðun, sérskoðun, boðun í skoðun af lögreglu, endurskráningarskoðun, fulltrúaskoðun, sérskoðun, aukaskoðun að kröfu lögreglu,).
Niðurstaða: Niðurstaða síðustu skoðunar sem framkvæmd var á ökutækinu (án athugasemda, endurskoðun, lagfæring, akstursbann).
Staða: Tilgreinir ef ökutæki er afskráð eða úr umferð (Í lagi, Afskráð, Úr umferð).
Árgerð: Árgerð er ákveðin af framleiðanda, en hún er ekki alltaf tilgreind. Frá 1. janúar 1999 er ekki skráð árgerð nýrra ökutækja. Í mörgum tilvikum er þó hægt að ákvarða árgerð út frá verksmiðjunúmeri ökutækis (sjá nánar umfjöllun um verksmiðjunúmer hér að framan).
Framleiðsluland: Framleiðsluland ökutækis.
Fyrsta skráning: Fyrsti skráningardagur ökutækis (hér á landi eða erlendis).
Forskráning: Dagsetning forskráningar (ökutæki skráð í forskrá).
Nýskráning: Dagsetning nýskráningar (ökutæki skráð til notkunar hér á landi).
Skráning eiganda: Skráningardagsetning síðustu eigendaskipta.
Kaupdagur: Tilgreindur kaupdagur ökutækis við síðustu eigendaskipti.
Móttökudagur: Móttökudagur tilkynningar við síðustu eigendaskipti.
Síðasta skoðun: Dagsetning síðustu skoðunar.
Næsta aðalskoðun: Sú dagsetning þegar ökutæki á næst að mæta til aðalskoðunar.
GJÖLD OG TRYGGING
Heildarstaða: Yfirlit yfir stöðu ökutækisins í öðrum kerfum er ökutækjaskrá tengist. GJ (tegund gjalda þar sem BK þýðir bifreiðagjald en BÞ þýðir þungaskattur). Kennitala (kennitala sem gjöldin hvíla á). Nafn (nafn þess aðila er gjöldin hvíla á). Samtals (heildarstaða áhvílandi gjalda). Bifreið (fjárhæð áhvílandi bifreiðagjalda). Þungaskattur (fjárhæð áhvílandi þungaskatts). Vextir (vextir af áhvílandi gjöldum). Kostnaður (kosnaður vegna áhvílandi gjalda). Ógjaldfallið (sá hluti áhvílandi gjalda sem er ógjaldfallinn). Tollafgreitt (já / nei svæði). Tryggingafélag (nafn tryggingafélags ef ökutæki er tryggt). Veðbönd (já / nei svæði). Samtals (heildarstaða áhvílandi gjalda). Nánari upplýsingar (Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn á landsbyggðinni veita nánari upplýsingar um opinber gjöld / Sýslumenn veita nánari upplýsingar um veðbönd / Tryggingafélög veita nánari upplýsingar um tryggingar).
Áætlun: Hér er unnt að áætla opinber gjöld fyrir það sem eftir er af gjaldtímabili við nýskráningu og úttekt skráningarmerkja.
Vörugjöld: Staða og sundurliðun vörugjalda ef ökutæki skuldar vörugjöld.
Álestrar: Ef ökutæki er með ökumæli vegna þungaskatts (diesel bifreið) koma fram upplýsingar um álestur ökumælis.
TÆKNILÝSING
Viðurkenning: Gerðarviðurkenningarnúmer ökutækins í gerðarskrá ökutækjaskrár.
Gerðarnúmer: Gerðarnúmer ökutækins í gerðarskrá ökutækjaskrár.
Torfærubifreið: Já / nei svæði sem segir til um það hvort bifreið er skráð sem torfærubifreið.
Breytt bifreið: Já / nei svæði sem segir til um það hvort bifreið er skráð sem breytt bifreið.
Vélargerð: T.d. bensín eða diesel.
Slagrými: Slagrými vélar
Afl (kW): Afl vélar.
Vélarnúmer: Vélarnúmer ökutækis (ekki alltaf tilgreint).
Breidd: Mesta breidd ökutækisins.
Lengd: Mesta lengd ökutækisins.
Eiginþyngd: Þyngd ökutækis, sem tilbúið er til notkunar, að meðtöldum búnaði sem því fylgir að jafnaði, eldsneyti, smurolíu, kælivatni, varahjóli, verkfærum ofl.
Burðargeta: Hámarksþyngd er ökutækið má bera.
Heildarþyngd: Eiginþyngd + burðargeta ökutækis (þyngd ökutækis með ökumanni, farþegum, farmi og viðfestum vinnutækjum).
Ás: Númer áss (hjólaás).
Burðargeta: Burðargeta hvers áss.
Hjólbarðar: Stærð hjólbarða á hverjum ási.
EIGENDAFERILL
Kaupdagur: Kaupdagur ökutækisins samkvæmt samningi seljanda og kaupanda.
Móttökudagur: Móttökudagur eigendaskiptatilkynningar hjá Umferðarstofu eða umboðsaðila hennar (pósthúsi eða skoðunarstofu).
Skráð.dags: Skráningardagsetning eigendaskipta.
Kennitala: Kennitala eiganda.
Nafn: Nafn eiganda.
Heimili: Heimilisfang eiganda.
UMRÁÐAFERILL
Dags. frá: Skráningardagur umráðamanns.
Dags. til: Niðurfelling skráningar umráðamanns.
Kennitala: Kennitala umráðamanns.
Nafn: Nafn umráðamanns.
Heimili: Heimili umráðamanns.
SKOÐUNARFERILL
Dags: Dagsetning skoðunar.
Tegund: Tegund skoðunar (aðalskoðun, endurskoðun, breytingaskoðun, skráningarskoðun, sérskoðun, boðun í skoðun af lögreglu, endurskráningarskoðun, fulltrúaskoðun, sérskoðun, aukaskoðun að kröfu lögreglu,).
Skoðunarstöð: Skoðunarstöð sem skoðaði ökutækið.
Skoðunarmaður: Nafn skoðunarmanns er skoðaði ökutækið.
Niðurstöður: Niðurstaða skoðunar (án athugasemda, endurskoðun, lagfæring, akstursbann).BREYTINGAFERILL
Dagsetning: Dagsetning skráningar á breytingu.
Lýsing: Lýsing á þeirri breytingu sem gerð hefur verið.
Ógilding: Dagsetning ógildingar á breytingu (ef hún hefur verið ógilt).
Uppruni: Nánari lýsing á eðli breytingar (Breyting, Gerðarbreyting, Sérbúnaður, Yfirbygging, Viðbót).
SKRÁNINGARFERILL
Dags: Dagsetning skráningar.
Lýsing: Skráningartegund (Forskráð, Tollafgreitt, Nýskráð, Afskráð, Endurskráð).
TJÓNAFERILL
Dagsetning: Dagsetning skráningar.
Ógild.dags: Sú dagsetning er skráning var felld úr gildi
Tjónaskráning: Lýsing á tjónaskráningu (Tjónabifreið, Viðgerð tjónabifreið, Erlend tjónagögn, Vatnstjón).
NÚMERAFERILL
Dags: Sú dagsetning er ökutæki er skráð á viðkomandi númer.
Skráningarnúmer: Áletrun á skráningarmerki.
Skr.flokkur: Skráningarflokkur, þe. tegund skráningarmerkja sem ökutæki ber (Almenn merki, Einkamerki, VSK-merki osfrv., sjá nánar framar skilgreiningu á skráningarflokk).
INNLAGNARFERILL
Dags: Dagsetning síðustu umferðarskráningar (innlögn / úttekt).
Skýring: Umferðarskráning ökutækis (innlagt af eiganda, númeraúttekt, afklippt, úr umferð v/ tjóns)
BREYTINGALÁSAR
Dags frá: Dagsetning skráningar breytingaláss á ökutæki.
Dags til: Dagsetning er breytingarlás er tekinn af ökutæki.
Breytingalás: Tegund breytingaláss og númer (1 Eigendaskiptalás, 2 Lögreglulás, 3 Nýskráningarlás, 4 Gjaldþrotalás, 5 Lögmannalás, 6 Heildarlás, 7 Skráning læst v/ vörugjalds og 9 Lögveð vegna vörugjalds. Breytingalás 1 - 6 er settur á af Umferðarstofu að beiðni beiðni eiganda, lögmanns, lögreglu eða Umferðarstofu og kemur tímabundið í veg fyrir að unnt sé að framkvæma tilteknar skráningar (nánari upplýsingar veittar hjá Umferðarstofu). Breytingalás 7 og 9 eru settir á að beiðni tollstjóra (lás 7 kemur í veg fyrir nýskráningu og lás 9 kemur í veg fyrir skráningu eigendaskipta). Tollstjóri verður að aflétta lásunum áður en unnt er að framkvæma skráningarnar.
EFTIRLÝSINGAR
Dags frá: Skráningardagsetning eftirlýsingar.
Skýring: Ökutæki eru skráð eftirlýst að beiðni lögreglu. Athugsemd birtist í ökutækjaskrá og ekki er unnt að framkvæma skráningu á viðkomandi ökutæki (breytingalás).
Ógild.dags: Ógildingardagsetning eftirlýsingar.
ATHUGASEMDIR
Dags: Skráningardagsetning athugsemdar.
Athugasemd: Lýsing á athugasemd.
Ógilt: Ógildingardagsetning athugasemdar.



