Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Ökutækjaskráningar

fimmtudagur 29. október 2009

Ný umferðarlög

Drög að frumvarpi til nýrra umferðarlaga eru nú til umsagnar öðru sinni hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Unnt er að senda inn umsögn um drögin til og með 26. nóvember 2009 á netfangið postur@sam.stjr.is.

Sjá nánar á vef Samgönguráðuneytisins.

föstudagur 9. október 2009

142% fleiri skráningarnúmer lögð inn

Á árinu 2009 hafa innlagnir skráninganúmera ökutækja aukist stórlega borið saman við undanfarin ár (sjá mynd).

Fram til þessa hafa eigendur árstíðabundinna ökutækja lagt skráningarnúmer þeirra inn til geymslu á veturna til þess að fá felld niður opinber gjöld og eftir atvikum tryggingar. Á þetta fyrst og fremst við um ökutæki sem eru notuð mest yfir sumartímann, líkt og húsbifreiðar, fornbifreiðar og bifhjól.

Þessi mikla aukning sem nú á sér stað má fyrst og fremst rekja til breyttra skoðunarreglna sem tóku gildi fyrr á þessu ári og fólu í sér að skylt er að skoða svonefndra ferðavagna, þ.e. hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi. Skoðun þessara ökutækja er nú áskilin fyrir 1. ágúst á skoðunarári og skal henni lokið fyrir 1. október á skoðunarári.

Með því að leggja númer þessara ökutækja inn til geymslu gátu eigendur ökutækjanna komið í veg fyrir að 15 þúsund króna vanrækslugjald yrði lagt á óskoðuð ökutækin. Í raun er þó um frest að ræða því þegar eigandi ökutækisins hyggst taka það aftur í notkun verður hann að byrja á að láta skoða ökutækið. Hjá Umferðarstofu er hægt að fá akstursheimild til einnar viku eftir að númerin eru tekin út en ef ekki er búið að skoða ökutækið innan þess frest leggst vanrækslugjald á það.

Þegar yfirlit yfir innlagnir og úttektir skráningarnúmera er skoðað kemur þessi árstíðabundna sveifla í ljós, þ.e. innlagnir aukast á haustmánuðum og úttektir á vormánuðum. Hins vegar er umtalsverð aukning á innlögn númera í september á þessu ári borið saman við undanfarin tvö ár. Á myndinni sést að 5239 skráningarnúmer voru lögð inn í september á þessu ári á meðan 2158 voru lögð inn til geymslu í fyrra. Þetta er 142% aukning á innlögnum skráningarnúmera á milli ára. Þessa gríðarlegu aukningu má rekja til þess að fjölmargir eigendur ferðavagna, þ.e. fellihýsa, hjólhýsa og tjaldvagna, kusu að leggja númerin inn í stað þess að færa þau til skoðunar eða eiga á hættu álagningu vanrækslugjalds.

Samanburður á innlögnum skráningarnúmera eftir mánuðum

föstudagur 16. janúar 2009

Skoðun ökutækja

Þann 9. janúar sl. tók gildi reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja sem tók við af eldri reglugerð nr. 378/1998. Um töluverða breytingu er að ræða frá eldri reglugerð en tilgangur nýju reglugerðarinnar er sá sami og þeirrar gömlu; að stuðla að auknu umferðaröryggi með því að tryggja að ökutæki sé í lögmæltu ástandi til þess að hætta af notkun þess verði sem minnst.

Helstu nýmæli reglugerðarinnar eru þau að skoðanatíðni nýrra bifreiða breyttist, tjaldvagnar og hjólhýsi (fellihýsi) urðu skoðanaskyld, og skoðanadagsetning fornbifreiða, húsbifreiða, bifhjóla hjólhýsa (fellihýsa) og tjaldvagna var samræmd og skal nú lokið fyrir þann 1. ágúst á skoðunarári. Þá var skoðanatíðni fornbifreiða breytt úr árlegri skoðun í skoðun á tveggja ára fresti. Að auki var þeim ökutækjum sem áður voru skoðuð árlega fækkað. Sendibifreiðar, kennslubifreiðar, bílaleigubifreiðar, létt bifhjól og ökutæki ætluð til neyðaraksturs, önnur en sjúkabifreiðar, sem áður skoðuðust árlega eru nú skoðuð líkt og fólksbifreiðar.

Nánari upplýsingar um efni reglugerðarinnar er að finna hér.


Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++