Upplýsingatorg
Umferðarslys á Íslandi 2010
Upplýsingar og samantekt úr skýrslu um umferðarslys á Íslandi árið 2010
Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni dómsmálaráðuneytisins. Árið 2010 var einnig notast við slysagögn frá Aðstoð og Öryggi ehf. Í einhverjum tilfellum rata umferðaróhöpp ekki í gagnagrunninn heldur beint á borð tryggingafélaga með tjónaskýrslum en það á yfirleitt við í tilfellum þar sem ekki er um slys á fólki að ræða.

Markmið stjórnvalda á Íslandi í umferðaröryggismálum
- Að fjöldi látinna í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum, fyrir árið 2016.
- Að fjöldi látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2016
- Markmiðin miðast við meðaltal fimm ára á undan.
Fjöldi slasaðra og látinna í umferðinni 2010
-
Árið 2010 urðu 883 slys með meiðslum og í þeim slösuðust og létust 1269 manns. Þar af voru 213 sem slösuðust alvarlega eða létust en þeir voru 187 árið áður . 1056 slösuðust lítilega en árið árið voru þeir 1112. 8 manns létu lífið í umferðinni árið 2010 og er sú tala sú lægsta sem Íslendingar hafa upplifað frá árinu 1968. Af þeim sem létust voru 4 karlar og 4 konur.
-
47% þeirra sem slösuðust voru ökumenn bifreiða. Farþegar bifreiða voru 32% og fótgangandi voru 8%. Reiðhjólamenn voru um 6% og önnur 6% voru á bifhjóli.
-
Flest slys og óhöpp í umferðinni verða milli klukkan 15 og 18 síðdegis.
Banaslys árið 2010

8 létust í 7 umferðarslysum á árinu 2010. Fimm þeirra sem létust voru ökumenn eða farþegar í bílum, einn var á bifhjóli og tveir voru fótgangandi.
Einn lést í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu árið 2010 og var sá fótgangandi. Annar fótgangandi lést í Borgarnesi og tveir farþegar bifreiðar létust í Reykjanesbæ. Þannig létust fjórir af átta manns í þéttbýli og hinir fjórir í dreifbýli.
Þrír létust af völdum ölvunaraksturs og í öllum tilvikum var einnig um hraðakstur að ræða.
Enginn lést undir 17 ára aldri og er það þriðja árið í röð sem það gerist.



