Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Um Umferðarstofu

föstudagur 26. mars 2010 kl. 16:13

Fræða skal farþega um reglur varðandi notkun öryggisbelta

Reglulega vakna umræður um notkun bílbelta í hópbifreiðum. Oftast gerist það í kjölfar slysa, bæði þegar fólk slasast vegna þess að belti hafa ekki verið í bílnum eða að þau hafi ekki verið notuð. Hér er farið yfir helstu atriði varðandi öryggisbelti í hópferðabílum og þær reglur sem gilda þar um.
Lesa meira...

föstudagur 26. mars 2010 kl. 07:30

Er fyllsta öryggis gætt við akstur með fatlaða?

Hreyfihamlað fólk nýtur Ferðaþjónustu fatlaðra og sjálfstæðra leigubíla til að komast á milli staða. Fötluðum hefur fjölgað töluvert og eykur það þörf fyrir þessa ferðaþjónustu. Alvarleg slys hafa orðið á fólki í slíkum akstri og því er vel við hæfi að kynna sér stöðu þeirra mála nú.
Lesa meira...

fimmtudagur 25. mars 2010 kl. 17:51

Ratleikur til að efla færni í umferð- inni, þrek og þol

Umferðarstofa stóð að ratleik fyrir börn í þriðja bekk Norðlingaskóla en leikurinn var til þess að styrkja kunnáttu barnanna fyrir umferðarreglum og þekkingu þeirra á umferðarmerkjum.
Lesa meira...

fimmtudagur 25. mars 2010 kl. 16:02

"Notaðu bílbeltin - alltaf" vinnur til tveggja verðlauna

Vefborði auglýsingaherferðarinnar "Notaðu bílbeltin - alltaf" sem Hvíta húsið vann fyrir Umferðarstofu og VÍS á síðasta ári vann til verðlauna á íslensku auglýsinga- hátíðinni. Auk þess hlaut auglýsingin FÍT Gull í vefauglýsinga- verðlaunin.
Lesa meira...

fimmtudagur 25. mars 2010 kl. 13:05

15% færri alvarlega slasaðir í umferðinni

Nú liggur fyrir skýrsla slysaskráningar Umferðarstofu um umferðarslys árið 2009. Í skýrslunni má sjá jákvæða þróun hvað varðar fækkun umferðarslysa frá því sem var árið á undan. Á landinu öllu fækkar alvarlegum slysum um 15%. Fara úr 200 árið 2008 í 170 árið 2009. Það fellur þó sá skuggi á að 17 létust í 15 slysum í umferðinni í fyrra en árið 2008 létust 12 í jafn mörgum slysum.
Lesa meira...

þriðjudagur 23. mars 2010 kl. 15:24

"Svo kom það fyrir mig" námsefni fyrir framhaldsskólana

Umferðarstofa hefur gefið út nýtt námsefni í umferðarfræðslu fyrir framhaldsskóla. Markmið námsefnisins, sem heitir "Svo kom það fyrir mig", er að sýna ungmennum alvarlegar afleiðingar áhættuhegðunar í umferðinni. Flest umferðarslys verða að völdum rangra og hættulegra ákvarðana.
Lesa meira...

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++