Umferðaröryggi
Umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga
Umferðarstofa hefur á síðasta ári hvatt sveitarfélög til að gera áætlanir um umferðaröryggi. Starfsmenn verkfræðistofunnar Mannvits hafa tekið saman leiðbeiningar um gerð umferðaröryggisáætlana fyrir sveitarfélög. Verkið var unnið í nánu samstarfi við Umferðarstofu og Vegagerðina auk þess sem samráð var haft við Samband íslenskra sveitarfélaga. Umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga miða að aukinni vitund um umferðaröryggismál, bæði meðal forráðamanna sveitarfélaganna og almennings. Í því felst að greina stöðu mála, finna slysastaði, setja sér markmið og gera aðgerðaráætlun. Miklu máli skiptir að íbúar séu virkir í þessu starfi, þar á meðal foreldrafélög í leik- og grunnskólum, sem og ýmis félagasamtök.
Aðrar skýrslur
Áhrif af gerð hjáleiða framhjá þéttbýli
Alvarleg umferðarslys á höfuborgarsvæðinu
Stofnbrautir hjólreiða – Rýni áætlana
Mat á útkeyrslum tveggja akreina hringtorga
Umferðaröryggi að- og fráreina
Sálrænir þættir í umferðarslysum ungra ökumanna
Umferðaröryggi hringtorga á Íslandi
Aksturhættir ungra ökumanna á Íslandi



