Umferðaröryggi
Umferðarstofa hefur undanfarið ár unnið að útgáfu á námsefni sem ætlað er til kennslu í framhaldsskólum landsins. Námsefnið, sem hlotið hefur nafnið Svo kom það fyrir mig, samanstendur af nokkrum DVD diskum og einum CD disk sem inniheldur kennsluleiðbeiningar og verkefni. Fræðslufulltrúi Umferðarstofu mun á árinu 2010 heimsækja framhaldsskóla landsins og kynna efnið fyrir kennurum og nemendum en í framtíðinni er gert ráð fyrir að lífsleiknikennarar muni sjálfir kenna efnið. Námsefnið fá framhaldsskólar sér að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar gefur Þóra Magnea Magnúsdóttir, fræðslufulltrúi hjá Umferðarstofu.



