Umferðaröryggi
Hvar getur maður sótt um stæðiskort fyrir fatlaða (P-merki)?
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu, að undanskildum þeim sem búsettir eru í Hafnarfirði, sækja um stæðiskort (P-merki) fyrir fatlaða hjá sýslumanninum í Kópavogi. Utan höfuðborgarsvæðisins er sótt um stæðiskort hjá sýslumanni eða lögreglustjóra viðkomandi umdæmis.
Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða veitir heimild til að leggja ökutæki hvar sem er á landinu í bifreiðastæði sem ætlað er fyrir fatlaða og auðkennt er með þar til gerðu umferðarmerki.
Umsækjendur þurfa að fylla út umsókn og skila inn ásamt læknisvottorði og passamynd. Lagt er mat á umsókn um stæðiskort hjá sýslumannsembættinu. Að uppfylltum skilyrðum reglugerðar um útgáfu stæðiskorta fyrir fatlaða nr. 369/2000 um veitingu slíks korts er gefið út stæðiskortið á persónu, ekki bílnúmer. Ekki þarf að setja bílnúmer inn á eldri kort, þó svo að korthafi skipti um bíl. Hér má sjá reglugerðina.
- Hér gefur að líta lista yfir umsóknarferlið.
- Umsækjandi nálgast eyðublöð á næstu lögreglustöð eða skrifstofu sýslumanns. Umsóknareyðublað má finna á lögregluvefnum undir liðnum "Eyðublöð" en þau má einnig nálgast með því að smella hér.
- Umsækjandi útvegar sér vottorð frá lækni um hreyfihömlun sína.
- Skilar síðan útfylltri umsókn og vottorði til lögreglustjóra eða sýslumanns í sínu umdæmi, ásamt passamynd af sér.
- Lögreglustjóri eða fulltrúi hans metur hvort umsækjandi á rétt á stæðiskorti.
- Ef umsókninni er hafnað sendir hann umsækjandanum umsóknina ásamt bréfi þar sem höfnun er rökstudd.
- Ef umsóknin er samþykkt áritar hann umsóknina og sendir ljósrit af henni ásamt passamynd umsækjandans til ríkislögreglustjóra.
Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða veitir heimild til að leggja ökutæki hvar sem er á landinu í bifreiðastæði sem ætlað er fyrir fatlaða og auðkennt er með þar til gerðu umferðarmerki.



