Um Umferðarstofu
þriðjudagur 6. október 2009 kl. 15:24
75% fækkun nýskráninga ökutækja það sem af er árinu
Í samantekt sem Umferðarstofa hefur gert á fjölda nýskráninga og eigendaskipta ökutækja kemur í ljós mikill samdráttur það sem af er árinu 2009 borið saman við árin á undan. Hér gefur að líta ítarlega greiningu og yfirlit yfir eigendaskipti og nýskráningar en hafa skal í huga að hér er um allar tegundir ökutækja að ræða.
Lesa meira...
þriðjudagur 6. október 2009 kl. 14:58
Fjölgun á skoðunum ökutækja
Eftir að nýjar reglur um skoðun ökutækja tóku gildi hefur það aukist til muna að eigendur ökutækja færi þau til skoðunar á réttum tíma. Markmið reglnanna er að fækka og helst útrýma óskoðuðum og mögulega hættulegum ökutækjum í umferðinni. Hér má sjá hvaða áhrif þessar reglur hafa haft á tíðni skoðana ökutækja.
Lesa meira...
fimmtudagur 1. október 2009 kl. 15:29
Umferðarfræðsluefni fyrir nemendur og kennara
Nýjar námsbækur sem innihalda mikilvægt og gagnlegt efni fyrir umferðarfræðslu í grunnskólum eru komnar út hjá Námsgagnastofnun ásamt handbók fyrir kennara. Bækurnar eru annarsvegar fyrir börn á svonefndu miðstigi sem að er 5. - 7. bekkur og svo hinsvegar unglingastigið sem að er 8. - 10. bekkur.
Lesa meira...
fimmtudagur 1. október 2009 kl. 14:55
Aukið umferðaröryggi innan sveitarfélaga
Sveitarfélög hafa mikilvægt hlutverk í umferðaröryggismálum en þrátt fyrir það hafa mörg þeirra ekki gert sérstakar umferðaröryggisáætlanir til framtíðar. Nú gefst sveitarfélögum kostur á að efla og bæta umferðaröryggisstarf sitt og auka þar með öryggi íbúa og annarra vegfaranda.
Lesa meira...
fimmtudagur 1. október 2009 kl. 09:52
16,3% fækkun umferðarslysa á milli ára
Umferðarslysum hefur fækkað á fyrstu sex mánuðum ársins borið saman við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í slysaskráningu Umferðarstofu sem byggir á upplýsingum úr gagnagrunni lögreglu. Samanlagður fjöldi alvarlega slasaðra og látinna minnkar borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2008, en fjöldinn í ár er svipaður og hann var fyrstu sex mánuði ársins 2007.
Lesa meira...
fimmtudagur 1. október 2009 kl. 09:45
Endurskinsmerkjum dreift ókeypis
Í annað sinn á þessu ári ætla Nýja Kaupþing og Umferðarstofa í sérstakt átak varðandi notkun endurskinsmerkja og vekja athygli á mikilvægi þeirra fyrir börn og fullorðna. Ljóst er að endurskinsmerki skipta sköpum hvað varðar öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Átakið felst í því að dreifa endurskinsmerkjum endurgjaldslaust til allra sex ára barna á landinu. Auk þess verður hægt að nálgast merkin í útibúum Nýja Kaupþings.
Lesa meira...



