Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Umferðaröryggi

Til að skrá íslenskt smíðaðan eftirvagn

Eyðublaðið til að skrá þær upplýsingar sem US þarf til að hægt sé að forskrá er hægt að finna í Upplýsingatorg - Upplýsingaskjöl - US.307.

Eftir forskráningu verður eigandi eftirvagnsins að gera vörugjaldsskýrslu vegna aðvinnslu eða framleiðslu ökutækis hjá Tollinum.

  • Eyðublaðið vörugjaldsskýrsla vegna aðvinnslu eða framleiðslu ökutækis er að finna á vef tollsins V-03.
  • Áður en þetta skjal er fyllt út skal viðkomandi vera búinn að fá forskráningu á ökutækið hjá Umferðarstofu og fastanúmer á það.
  • Þegar þetta skjal V-03 er fyllt út þá skal koma fram allur sá kostnaður sem lagður hefur verið í smíðina þar með talinn efniskostnaður ásamt reikningum og vinna (tímafjöldi).
  • Ef kerra er heimasmíðuð er áætlað að vinnutíminn megi vera 1.850 kr. pr. tíma, annars er tíminn samkvæmt útseldum tíma á verkstæði.
  • Þegar þetta er komið og búið að reikna út í tollakerfinu er sendur tölvupóstur á skráning.is og gefin heimild til að nýskrá eftirvagninn.

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++