Upplýsingatorg
Skoðun tjaldvagna, hjólhýsa og fellihýsa:
Hjólhýsi (fellihýsi) og tjaldvagna skal færa til skoðunar fyrir 1. október á eftirfarandi skoðunarári:
Hjólhýsi (fellihýsi) og tjaldvagna sem voru skráð:
2009 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2013, síðan á tveggja ára fresti;
2008 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2012, síðan á tveggja ára fresti;
2007 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2011, síðan á tveggja ára fresti;
2006 skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2010, síðan á tveggja ára fresti;
2005 og fyrr skal færa til aðalskoðunar í fyrsta sinn 2009, síðan á tveggja ára fresti.
Nánari upplýsingar um eftirvagna og tengitæki er að finna hér.
Allar skoðunarstofur á landinu geta tekið á móti eftirvögnum sem eru hemlalausir og undir 750 kg að þyngd.
Á eftirtöldum skoðunarstofum er unnt að láta skoða vagna sem eru allt að 3.500 kg að þyngd:
Aðalskoðun, Hjallahrauni 4, 220 Hafnarfirði
Aðalskoðun, Skemmuvegi 6, 200 Kópavogi (Með fyrirvara um lengd og hæð eftirvagns).
Frumherji, Hesthálsi, 110 Reykjavík
Frumherji, Klettagörðum, 104 Reykjavík
Frumherji, Njarðarbraut 7, 260 Reykjanesbæ
Frumherji, Norðurlandsvegi, 540 Blönduósi
Frumherji, Smiðjuvöllum 17, 300 Akranesi
Frumherji, Frostagötu 3a, 603 Akureyri
Frumherji, Sólbakka 2, 310 Borgarnesi
Frumherji, Hrísmýri 9, 800 Selfossi
Frumherji, Lagarbraut 1, 701 Fellabæ
Frumherji, Borgartúni 8, 550 Sauðárkróki
Frumherji, Haukamýri, 640 Húsavík
Tékkland, Reykjavíkurvegi 54, 220 Hafnarfirði (Hámark 4.000 kg að eiginþyngd)



