Um Umferðarstofu
Umferðarstofa stofnun ársins 2010
Niðurstöður úr könnuninni á Stofnun ársins 2010 voru kynntar á Nordica 7. maí kl 17:00 en þetta var í fimmta sinn sem SFR stendur að vali á Stofnun ársins. Sigurvegarar voru Umferðarstofa í hópi stærri stofnana og Sýslumaðurinn á Hvolsvelli í hópi minni stofnana. Þetta er annað árið í röð sem Umferðarstofa er valin Stofnun ársins.
Könnunin var gerð meðal félagsmanna SFR, þátttakendur voru spurðir um trúverðugleika stjórnenda, vinnuskilyrði, ímynd, sjálfstæði, sveigjanleika, ánægju með launakjör og fleira. Ennfremur var stofnunum gefin kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar tækju þátt í könnuninni óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir væru og höfðu allir starfsmenn Umferðarstofu kost á því. Ljóst er að þátttaka þeirra og sú einkunn sem þeir gefa vinnustað sínum annað árið í röð er vitnisburður góðs starfsanda, starfsmannastefnu og stjórnunar stofnunarinnar. Alls tóku tæplega 200 stofnanir þátt í ár og rúmlega 4000 starfsmenn.
Í hópi minni stofnana fékk Sýslumaðurinn á Hvolsvelli hæstu einkunn, eða 4,73 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Í öðru sæti var Sýslumaðurinn í Vík og í því þriðja var Skattrannsóknarstjóri ríkisins. Í hópi stærri stofnana fékk Umferðarstofa hæstu einkunn, 4,18 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Í öðru sæti var Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi og í því þriðja var Landgræðsla ríkisins. Hástökkvarinn í ár var Sýslumaðurinn á Siglufirði, en stofnunin bætti sig um 48 sæti á milli ára.

Hér sést hvar Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri ökutækjasviðs Umferðarstofu veitir viðurkenningunni viðtöku úr höndum Árna Stefáns Jónssonar formanni SFR. Á myndinni lengst til hægri eru fulltrúar starfsmanna Umferðarstofu með verðlaunin, fv. Þorbjörg Jónsdóttir; Sædís Jónasdóttir, Ólöf Friðriksdóttir, Dagný Jónsdóttir og Gunnar Geir Gunnarsson
Umferðarstofa stofnun ársins 2009
Umferðarstofa og Sýslumaðurinn í Vík hafa verið valdar stofnanir ársins 2009. Umferðarstofa í flokki stærri stofnana þar sem starfsmenn eru 50 eða fleiri en Sýslumaðurinn í Vík í smærri stofnunum. Í öðru sæti stærri stofnana var Ríkisskattstjóri en hann var í fyrsta sæti í fyrra.
SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð nú í fjórða sinn að vali á Stofnun ársins. Könnun var gerð meðal félagsmanna SFR á starfsskilyrðum þeirra og líðan á vinnustað. Ennfremur var stofnunum gefin kostur á að allir starfsmenn stofnunarinnar tækju þátt í könnuninni óháð því í hvaða stéttarfélagi þeir væru og höfðu allir starfsmenn Umferðarstofu kost á því. Ljóst er að þátttaka þeirra og sú einkunn sem þeir gefa vinnustað sínum er vitnisburður góðs starfsanda, starfsmannastefnu og stjórnunar stofnunarinnar.
Birgir Hákonarson framkvæmdastjóri Umferðaröryggissviðs og staðgengill forstjóra veitti viðurkenningunni viðtöku og sagði hann að Umferðarstofa legði mikla áherslu á góða starfsmannastjórnun. Til að ná þeim markmiðum væru reglulega gerðar kannanir og mælingar á líðan og árangri starfsmanna.
Þess má geta að árið 2007 var Umferðarstofa í 27 sæti og í fyrra var stofnunin í öðru sæti. Í niðurstöðum könnunarinnar árið 2009 kemur fram að trúverðugleiki stjórnenda fær einkunnina 4,68 sem að er hæsta einkunn í þeim flokki en tekið skal fram að meðaltalið er 3,86. Starfsmenn Umferðarstofu gáfu starfsandanum einkunnina 4,71 sem að er hæst allra stofnana og talsvert hærra en hjá næstu stofnun en meðaltalið er 4,13.
Umferðarstofa valin ríkisstofnun til fyrirmyndar 2006
16. maí afhenti fjármálaráðherra, Árni M. Mathiesen, Umferðarstofu viðurkenningu sem ríkisstofnun til fyrirmyndar 2006. Karl Ragnars forstjóri veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd stofnunarinnar.
Stjórnvöld hafa markvisst unnið að því undanfarin ár að bæta þjónustu, skilvirkni, hagkvæmni og árangur í ríkisrekstri og er tilgangurinn með því að velja ríkisstofnun til fyrirmyndar sá að hvetja stofnanir til dáða í þessum efnum. Starfsfólk og stjórnendur Umferðarstofu hafa á undanförnum árum keppt markvisst að settum markmiðum stjórnvalda og hefur stöðug þróunarvinna og nýsköpun á sér stað í því sambandi.
Í janúar skipaði fjármálaráðherra nefnd til þess að velja ríkisstofnun sem skarar fram úr og er til fyrirmyndar í starfi sínu. Nefndin skoðaði hversu skýr stefnumótun, framtíðarsýn og markmiðssetning tilnefndra fyrirtækja var. Einnig var horft til þess hvaða stjórnunaraðferðir væru notaðar, hvernig stjórnendur og starfsmenn fylgdust með því að vinnan skilaði árangri og stefnumörkun miðaði í rétta átt. Skoðað var hvaða aðferðum stofnanir beita til að þróast og bæta árangur sinn í síbreytilegu umhverfi og nýjungar í þjónustu við notendur og betri liðsheild innan stofnananna. Nefndin lagði áherslu á að starfsemi ríkisstofnunar til fyrirmyndar væri árangursrík og skilvirk og að stofnunin hefði metnað til að bæta sig.
Í niðurstöðum nefndarinnar segir m.a. um Umferðarstofu
„Umferðarstofa er stjórnsýslu- og eftirlitsstofnun sem sett var á laggirnar í október 2002 til að taka við verkefnum Umferðarráðs og Skráningarstofunnar, ásamt verkefnum sem dómsmálaráðuneytið hafði sinnt. Í framhaldinu var ráðist í viðamikla stefnumótun, komið á nýju stjórnskipulagi og breytingar gerðar á ýmsum kerfum. Áskorunin fólst í að breyta þeirri afgreiðsluhugsun sem ríkt hafði og taka upp þjónustuhugsun ásamt því setja meiri kraft í umferðaröryggismálin. Hluti af framtíðarsýninni var að árið 2006 yrði Umferðarstofa talin fyrirmyndarstofnun í ríkisrekstri sem nú hefur ræst. Mikill hugur var í starfólki sem tók allt þátt í útfærslu stefnunnar og umræðu um markmiðssetningu í anda stefnumiðaðs árangursmats sem reynst hefur öflugt tæki til að koma á breytingum.
Margar breytingar hafa verið gerðar og þær einkennst af metnaði og keppnisanda sem kemur fram í mikill starfsánægju samkvæmt mælingum. Stofnunin hefur einnig verið óspör á að miðla öðrum stofnunum af reynslu sinni á sviði árangursstjórnunar. Mikil áhersla er lögð á þjónustu, sem er eitt af gildum stofnunarinnar, og nýsköpun hefur verið sett í forgrunn. Stór skref hafa verið stigin í þá átt að bæta rafræn samskipti við viðskiptavini stofnunarinnar sem sést m.a. á því að hægt er að tilkynna um eigendaskipti ökutækja rafrænt, svokölluð 100% vefþjónusta.”
Nefndin tók m.a. mið af fyrirliggjandi gögnum sem sýndu fram á góðan árangur Umferðarstofu á mörgum sviðum og skulu hér nefnd nokkur dæmi:
- Ljóst er að þrátt fyrir töluverða fjölgun viðskiptavina hefur meðalbiðtími í afgreiðslu hjá Umferðarstofu styst úr tæpum fjórum mínútum í tæpar tvær og fjöldi þeirra sem bíða lengur en í sjö mínútur hefur farið úr rúmlega 700 á mánuði niður í 60.
- Í úttekt óháðs aðila á viðmóti vefja opinberra stofnana leiddi í ljós að vefur Umferðarstofu er meðal þeirra bestu.
- Auglýsingar Umferðarstofu hafa vakið mikla athygli og þótt sumar hafi verið umdeildar sýna mælingar að skilaboðin hafa í 80-90% tilvika komist vel til skila. Auglýsingin „Hægðu á þér“ hefur t.d. hlotið viðurkenningar bæði innan lands og utan.
- Mælanlegur árangur hefur náðst í umferðaröryggismálum, sem stofnunin vinnur að ásamt fjölmörgum öðrum og má í því sambandi geta þess að árið 2002 létust í umferðinni eða slösuðust alvarlega 200 manns en árið 2004 var fjöldinn undir 150, þrátt fyrir umtalsverða fjölgun ökutækja.
Í nefndinni voru Katrín Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Lýsis hf., Einar Ragnar Sigurðsson, formaður Stjórnvísi, og Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík. Með nefndinni störfuðu Arnar Þór Másson stjórnmálafræðingur og Leifur Eysteinsson viðskiptafræðingur hjá fjármálaráðuneytinu.



