Efst á síðu

Aðalleiðakerfi:

Efst á síðu

Efni síðu:

Um Umferðarstofu

þriðjudagur 12. maí 2009 kl. 08:44

Skráningar ökutækja

Fjöldi nýskráninga ökutækja er það sem af er árinu í sögulegu lágmarki. Einnig má sjá töluverða fækkun eigendaskipta ökutækja.
Lesa meira...

þriðjudagur 12. maí 2009 kl. 08:28

Umferðarstofa stofnun ársins 2009

Umferðarstofa og Sýslumaðurinn í Vík hafa verið valdar stofnanir ársins 2009. Umferðarstofa í flokki stærri stofnana, þar sem starfsmenn eru 50 eða fleiri, en Sýslumaðurinn í Vík í flokki smærri stofnana. Í öðru sæti stærri stofnana var Ríkisskattstjóri en hann var í fyrsta sæti í fyrra.
Lesa meira...

föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00

Tillit - fréttablað Umferðarstofu

Tillit er nýtt rafrænt fréttablað Umferðarstofu sem gangast mun fjölmiðlum, viðskiptavinum Umferðarstofu og öllum þeim sem vinna að umferðaröryggismálum.
Lesa meira...

föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00

Nýmæli um skoðun ökutækja

Nú gætir þeirrar nýbreytni að tjaldvagnar, hjólhýsi og fellihýsi eru skoðunarskyld, samkvæmt reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja. Eigendum þeirra er skylt að færa þau til skoðunar fyrir 1. ágúst á tilgreindu skoðunarári.
Lesa meira...

föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00

Slysaskýrsla Umferðarstofu 2008

Ljóst er að árið 2008 var í flesta eða alla staði betra en árið 2007 hvað varðar fjölda slysa. Það er þó ekki hægt að segja að árangurinn sé ásættanlegur eða góður sé hann borinn saman við lengra tímabil og þau markmið sem sett hafa verið í baráttunni gegn umferðarslysum. Árið 2008 er annað árið í röð þar sem Ísland er með lægstu dánartíðni í umferðarslysum á Norðurlöndum miðað við fólksfjölda.
Lesa meira...

föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00

Gagnvirkt slysakort

Nú er hægt að nálgast ítarlegar upplýsingar um umferðarslys sem orðið hafa í umferðinni hér á landi á árunum 2007 og 2008 á gagnvirku slysakorti Umferðarstofu.
Lesa meira...

föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00

Nýtt námsefni í umferðarfræðslu fyrir leikskóla

Fræðslusvið Umferðarstofu hefur útbúið námsefni fyrir leikskóla sem tekur mið af þeim umferðarreglum sem leikskólabörn þurfa að kunna.
Lesa meira...

föstudagur 1. maí 2009 kl. 00:00

Veltibíll

Föstudaginn 8. maí sl. var undirrritaður samningur milli Volkswagen verksmiðjanna í Þýskalandi og Heklu umboðsaðila þeirra, Sjóvá, Forvarnahússins, Brautarinnar og Umferðarstofu um að Volkswagen gæfi tvo veltibíla hingað til lands.

Lesa meira...

Efst á síðu

Símanúmer og aðrar upplýsingar :

Umferðarstofa - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík
Sími: 580 2000 - Bréfasími: 580 2001 - us@us.is
Kt.: 660802-3120 - Afgreiðslutími 08:00 - 16:00


AA +A ++